
Alþjóðlega hátæknifyrirtækið Innovasea, sem sýnir í hinni nýju Miðstöð fiskeldis á IceFish í september, fagnar nú frábærum árangri við notkun full-sökkvanlegu fiskeldiskerfa sinna til ræktunar og nýtingar gullinrafa (Seriola dumerili) í Rauðahafinu.
Innovasea er leiðandi fyrirtæki á alþjóðavísu í þróun hátæknilausna fyrir fiskeldi og fiskileit. Umrætt verkefni í Rauðahafinu er nýtt af nálinni og heyrir undir hið svokallaða Topian-fiskeldisátak á vegum sádí-arabíska konungsdæmisins. Átakið er hluti af matvælaþætti NEOM, eða Línuborgarinnar svonefndu, sem er fyrirhuguð snjallborg í Sádi-Arabíu.
Hinar byltingarkenndu SeaProtean-fiskeldiskvíar frá Innovasea voru settar upp í Rauðhafinu og fylltar árið 2025, þær fyrstu sinnar tegundar sem teknar voru í notkun á svæðinu. Þrátt fyrir mikinn hita sl. sumar gerði háþróað flotstýringarkerfi SeaProtean og full-sökkvanleg hönnun þess rekstraraðilum kleift að færa eldisfisk á öruggan hátt lengra niður fyrir sjávarborðið og undir hitalínuna.
Fyrir vikið drápust engir fiskar sökum hitans. Með því að færa allt kerfið undir sjávarborðið, er nú hægt innan vébanda Topian-átaksins að rækta á árangursríkan hátt eldisfisk sem er viðkvæmur fyrir hita, og vernda um leið náttúrufegurð hafsins.
„SeaProtean-kvíarnar eru hannaðar til að styðja við fiskeldi í öfgafullu umhverfi, eins og t.d. í háum yfirborðshita Rauðahafsins,“ segir Marc Turano, framkvæmdastjóri fiskeldiskerfa hjá Innovasea. „Með því að nota full-sökkvanlegar kvíar geta viðskiptavinir okkar nú stækkað fiskeldi sitt á svæðum sem áður voru talin óhæf til fiskeldis.“
Kvíarnar eru útbúnar með nýjustu og fullkomnustu tækni sem er í boði fyrir nákvæmnisræktun í fiskeldi, til að trygga mestu hugsanlegu afköst. Umhverfisskynjarar fylgjast með breytingum á aðstæðum í sjónum, gervigreindarknúnar lífmassamyndavélar fylgjast gaumgæfilega með vaxtarþróun fisksins, og háskerpumyndavélar veita fulla innsýn í starfsemina neðansjávar.
„Við erum spennt að vinna með Topian-átakinu að innleiðingu nýjustu fiskeldistækninnar á þetta svæði,” segir Mark Jollymore, framkvæmdastjóri Innovasea. „Þetta er frábært tækifæri til að sýna fram á kosti nákvæmnisræktunar í fiskeldi og leggja grunninn að starfsemi á svæði sem getur hæglega orðið miðstöð fyrir verulegan vöxt í þessari atvinnugrein.”
Matvælaöryggi er lykilþáttur í skipulagi Línuborgarinnar og sérstök áhersla lögð á að framleiða sjálfbær matvæli í hæsta gæðaflokki. Topian-átakið nýtir sér staðbundna fiskistofna og dregur þannig úr þörf fyrir innflutning á umhverfisvænan hátt.
„Innleiðing þessarar byltingarkenndu tækni endurspeglar skuldbindingar okkar um að nota nýjustu tækniframfara til að bæta matvælaframleiðslu og tryggja sjálfbærni,“ segir Majid Mufti forstjóri NEOM fjárfestingarsjóðsins (NIF). „Topian-fiskeldisátakið mun tryggja aðgang að bragðgóðum, staðbundnum fisktegundum sem eru uppspretta hágæða próteina, og dregur með umhverfisvænum hætti úr þörf fyrir innflutning á matvælum.”
Slástu í hópinn með Innovasea og öðrum öflugum fyrirtækjum í hinni nýju og glæsilegu Miðstöð fiskeldis á IceFish 2026. Hafðu samband við teymið okkar í netfangið sales@icefish.is




