
Faxaflóahafnir hafa nú gengið til liðs við Stuðningsaðila Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningarinnar, IceFish, en þeir samanstanda af sívaxandi hópi öflugra fyrirtækja og samtaka í sjávarútvegi og skyldum greinum.
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og viðskiptasvæði Íslands við umheiminn og hafið í gegnum hafnir sínar í Reykjavík, á Akranesi, á Grundartanga og í Borgarnesi. Faxaflóahafnir reka fjölbreytt og samþætt hafnakerfi sem þjónustar m.a. farmflutninga, skemmtiferðaskip og fiskveiðiskip, og styðja bæði við alþjóðaviðskipti og innlendar atvinnugreinar.
Faxaflóahafnir hafa að leiðarljósi sjálfbærni, öryggi og nýsköpun. Í krafti þeirra gilda vinna þau stöðugt að því að efla efnahagsvöxt á starfssvæði sínu, tryggja ábyrga umgengni um hafið og veita trausta og nútímalega hafnarþjónustu til frambúðar.
„Hafnir eru nauðsynlegar fyrir Ísland og tengja íslenska fiskveiði- og fiskeldisgeirann við alþjóðlega markaði,“ segir Eldar Ástþórsson, markaðs- og samskiptastjóri Faxaflóahafna. „Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin & ráðstefnurnar hefur einnig tengt þessar atvinnugreinar saman um áratugaskeið, og lagt áherslu á að bjóða upp á dýrmæt tækifæri til að skapa og styrkja viðskiptasambönd og tengslanet fyrirtækja innan sjávarútvegs. Faxaflóahafnir og IceFish setja því áþekk markmið á oddinn, og það er okkur afar kærkomið að styðja við bakið á IceFish. Það er gríðarlegt tilhlökkunarefni fyrir Faxaflóahafnir og starfsfólk þeirra að mæta á sýninguna í september næst komandi.“
Frá því að IceFish hóf göngu sína árið 1984 hefur sýningin verið ómissandi vettvangur og hreinræktuð hátíð fyrir íslenskan sjávarútveg. Hún hefur laðað til sín sístækkandi hóp alþjóðlegra sýnenda og gesta með hverju árinu sem líður, skapað ótal mörg ný og ábatasöm viðskiptatækifæri og styrkt ímynd og stöðu Íslands sem miðpunkts framúrskarandi nýjunga í útgerð, nýsköpunar í þróun virðisaukandi afurða og vinnslu hágæða sjávarafurða. Á undanförnum misserum hefur hið ört vaxandi fiskeldi bæst við þessar mikilvægu grunnstoðir íslensks sjávarútvegs.
IceFish-sýningin verður haldin í fimmtánda skipti dagana 22.-24. september nk. í Smáranum/Fífunni í Kópavogi. Þar verður boðið upp á fjölbreytt og glæsilegt úrval sýnenda, áhugaverðar ráðstefnur, fyrirtækjastefnumót, viðburði sem tengjast nýsköpun, vörukynningar og auðvitað hin virtu og eftirsóttu Íslensku




