Námsstyrkir IceFish voru tilkynntir við hátíðlega athöfn í Íslenska sjávarklasanum þann 12. mars sl. Skipuleggjendur Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningarinnar, IceFish, veita styrkina, en sýningin fer fram dagana 22.-24. september nk. Námsstyrkir IceFish voru fyrst veittir árið 2017.
Styrkirnir endurspegla skuldbindingar IceFish við framtíð sjávarútvegs og fiskeldis á Íslandi og minna á mikilvægi þess að fjárfesta í menntun þeirra sem hafa áhuga á að starfa í þeim greinum. Hver styrkur hljóðar upp á 300 þúsund krónur. Fyrri hluti styrkjanna var afhentur við athöfnina í Íslenska sjávarklasanum, en seinni helmingur þeirra verður afhentur samhliða veitingu Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna á opnunarkvöldi IceFish þriðjudaginn 22. september nk.
Þrjár öflugar og efnilegar námsstúlkur við Fisktækniskóla Íslands voru valdar úr hópi umsækjenda, þær Katarzyna Staszek, Ewa Jaros og Malgorzata Barbara Sworowska. Allar stunda þær nú nám í gæðastjórnun við skólann og starfa jafnframt í sjávarútvegi; Katarzyna hjá Brim í Reykjavík; Ewa hjá Jakob Valgeiri í Bolungarvík og Malgorzata hjá Nýfiski í Sandgerði.
Katarzyna og Malgorzata voru viðstaddar afhendingu styrkjanna í Íslenska sjávarklasanum, en því miður varð Ewa veðurteppt fyrir vestan og gat því ekki mætt í eigin persónu. Skólastjóri Fisktækniskóla Ísland mun afhenda henni viðurkenningarskjal sitt og fyrri hluta námsstyrksins við fyrstu hentugleika.
Dómnefnd sérfræðinga í íslenskum sjávarútvegi lagði mat á umsóknirnar, en í henni sitja þau Klemenz Sæmundsson, skólastjóri Fisktækniskóla Íslands, Hrefna Karlsdóttir, yfirráðgjafi hjá Samtökum fyrirtækja í sjávartútvegi, Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, og Bjarni Jónsson, fulltrúi IceFish.
Sally Wattam, viðburðastjóri hjá Mercator Media, skipuleggjanda IceFish:
„Það veitir mér mikla gleði að afhenda þessi námsstyrki. Skipuleggjendur IceFish legga sig alla fram um að styðja við atvinnuveiðar og fiskeldi á Íslandi, og eru þess mjög meðvitaðir að aðlaga og stækka sýninguna í samræmi við þróun og vöxt þeirra greina til að mæta síbreytilegum kröfum. Við erum einnig hæstánægð með að geta stutt við þann kraftmikla hóp fólks sem starfar í faginu, sérstaklega ungu kynslóðina sem er að hefja feril sinn í sjávarútvegi og mun móta framtíð þessarar atvinnuvega. Ég óska styrkhöfum alls hins besta bæði í starfi og námi. Við hlökkum öll til að fylgjast með framförum þeirra í hinum blómlegu geirum útgerðar og fiskeldis á Íslandi.“
Klemenz Sæmundsson, skólastjóri Fisktækniskóla Íslands:
„Styrkirnir eru ákaflega jákvæðir fyrir okkur, og það hjálpar bæði nemendum og skólanum sjálfum að IceFish veiti þá nú sem fyrr. Menntun er gríðarlega mikilvæg fyrir framþróun og hag sjávarútvegs og fiskeldis á Íslandi, og styrkirnir sýna glöggt hversu mjög IceFish lætur sér annt um þessar greinar, og hversu mjög þessar greinar láta sér annt um skólann. Slíkur áhugi og hvatning er mikils virði fyrir okkur.“
Mynd sýnir:
Klemenz Sæmundsson, Headmaster of the Icelandic College of Fisheries; Ásdís Vilborg Pálsdóttir, Assistant Master: Katarzyna Staszek, Student; Malgorzata Barbara Sworowska, Student; Sally Wattam, Events Director, IceFish; Tracey Clarke, Events Manager, IceFish,; Monika Maria Figlarska, Project manager and interpreter, Icelandic College of Fisheries; Hrefna Karlsdóttir, Senior adviser at Fisheries Iceland; Thordis Daníelsdóttir, Office Manager, Icelandic College of Fisheries; Bjarni Jonsson, representative of IceFish.




