En það eru annasamir tímar framundan hjá skipasmíðastöðinni áður en hún gengur til liðs við önnur leiðandi fyrirtæki í færeyska sýningarskálanum á IceFish. Ekki aðeins mun MEST smíða 44 metra langan frystitogara fyrir útgerðarfyrirtækið Varðin í Færeyjum og reisa þurrkví á athafnasvæði sínu í bænum Skála á Austurey, heldur einnig smíða 24 metra langa tvíbytnu fyrir fiskeldisfyrirtækið Mowi.
Þessi nýsmíði fyrir Mowi verður stærsta tvíbytna í Færeyjum að henni lokinni. Forsvarsmenn MEST segja að skipið muni svara þörfi Mowi fyrir mun stærra þilfar en flest fley af svipaðri stærðargráðu geta boðið upp á, ásamt því að rýmið fyrir allan tækjakost verði mun meira og aðgengilegra.
Nýja tvíbytnan verður 24 metrar að heildarlengd og 12 metra breið. Skipið er sérstaklega hannað fyrir færeyska fiskeldisgeirann og uppfyllir ströngustu kröfur færeysku siglingamálastofnunarinnar.
„MEST fylgist grannt með þróuninni í fiskeldisgeiranum og kappkostar að smíða háþróaðar tvíbytnur í miklum gæðum á samkeppnishæfu verði,“ sagði Mouritz Mohr, forstjóri skipasmíðastöðvarinnar.
Skipasmíðastöðin undirbýr sig einnig fyrir að taka við smíði og frágangi frystitogarans Dunga Jákup fyrir útgerðarfyrirtækið Varðin, en skrokkur skipsins er nú í smíðum hjá Stocznia Wisła skipasmíðastöðinni í Gdansk í Póllandi. Skipið er nefnt eftir einum af stofendum Varðin, Jákupi Jacobsen, sem lést í desember í fyrra. Togarinn er 44 metra langur og 12 metra breiður og á að koma til Færeyja frá Póllandi í næsta mánuði, og vera fullfrágenginn til afhendingar sumarið 2026.
MEST heldur sömuleiðis ótrauð áfram framkvæmdum við nýja þurrkví á athafnasvæði fyrirtækisins í Skála á Austurey, en kvíin verður 150 metra löng, 33 metra breið og 11,5 metra djúp. Hún á að vera tilbúin til notkunar í október 2026. Með þessari stækkun stöðvarinnar opnast fjölmargir spennandi möguleikar fyrir sjávarútveginn í Færeyjum og nágrannalöndum þeirra, þar á meðal auðvitað Íslandi og Grænlandi.
IceFish var fyrst haldin árið 1984 og nýtur mikilla vinsælda og virðingar á sínu sviði. Sýningin hefur fyrir löngu skipað sér verðugan sess sem traustur vettvangur fyrir uppbyggingu á viðskiptatengslum, og sem miðpunktur þess nýjasta og áhugaverðasta sem finna má á sviði atvinnuveiða, vinnslu sjávarfangs og þróun aukaafurða, ásamt hinum ört vaxandi fiskeldisgeira.
Á IceFish 2026 verður sérstakt svæði helgað fiskeldi og boðið upp á nýja, aukna og endurbætta ráðstefnu-dagskrá. Ráðstefnurnar verða haldnar á sýningarsvæðinu.
Ítarlegri upplýsingar um þátttöku á IceFish má fá með því að senda póst á netfangið: sales@icefish.is




