
Hreinlætislausnir Áfangar býður upp á heildarpakka
Fyrirtækin Hreinlætislausnir ehf. og Áfangar ehf. sameinuðust í byrjun þessa árs og heitir hið sameinaða fyrirtæki Hreinlætislausnir Áfangar.
Hreinlætislausnir ehf. hefur um árabil sérhæft sig í að veita alla þá þjónustu er tengist matvælaöryggi, efnavörum og alhliða lausnum er lúta að hreinlæti. Áfangar ehf. hefur hins vegar lagt megin áherslu á þjónustu við hótel, veitingastaði og verslanir. Eftir samrunann býður fyrirtækið nú upp á heildarlausnir fyrir viðskiptavini sína.
Fyrirtækið hefur áratuga reynslu af því að þjóna íslenskum matvælafyrirtækjum í fremstu röð og leggur mikinn metnað í að aðstoða viðskiptavini sína með hraða, gæði og persónulega þjónustu að leiðarljósi.
Á IceFish í september nk. býður Hreinlætislausnir Áfangar upp á fjölbreytt úrval af vörum frá sérhæfðum birgjum sínum. Þar á meðal eru:
PolySto – veggeiningar fyrir íslensk fyrirtæki í fisk- og matvælaiðnaði, hannaðar sérstaklega fyrir umhverfi þar sem kröfur um hreinlæti eru í fyrirrúmi.
Áfangar Nordic Services og Christeyns - hjálpa matvælaframleiðendum að ná betri árangri í þrifum með réttri blöndu af fagvörum, tæknilegri þekkingu og hagnýtum lausnum.
Innodal - lausnir fyrir íslenska matvælaiðnaðinn byggðar á bakteríósín, örverudrepandi efni sem veitir viðbótarstuðning til að draga úr hættu á listeríu-sýkingu við framleiðslu matvæla.
Skólplausnir – lausnir sem spanna allt frá endurvinnslukerfum fyrir vatn og fullkomnum hreinsistöðvum til traustra iðnaðarinnviða, lausnir þróaðar í samstarfi við leiðandi alþjóðleg fyrirtæki á borð við Christeyns HydRO for Industries, Depurtech og Rotek Denmark.
Nemis - hraðvirk greiningartæki fyrir vinnslustöðvar, hönnuð til að hjálpa framleiðendum að bera kennsl á skaðlegar bakteríur á borð við Listeria monocytogenes, Salmonella og E. coli.
Xucla - sérsmíðaðar hreinlætislausnir og þvottabúnaður fyrir íslenskan matvælaiðnað, svo sem þvottavélar fyrir kassa og ker, gegnumrennsliskerfi, sótthreinsunartæki fyrir skó, ásamt margvíslegum öðrum sérhæfðum hreinlætisbúnaði fyrir krefjandi framleiðsluumhverfi.
ATT Drains – sérhönnuð tæki á boð við niðurföll úr ryðfríu stáli, flæðirásir og frárennslislaunir, sem bæta skilvirkni hreinsunar, koma í veg fyrir mengunarhættu og auðvelda að uppfylla ströng skilyrði um matvælaöryggi.
PH7 - hjálpar framleiðendum að hámarka ferla sína og viðhalda náttúrulegum eiginleikum, útliti og gæðum afurða sinna með pH7 lausnum, allt frá sprautupæklum og efnum til að bæta áferð til gljáningar, rotvarnarefna og aðferða til að auka gæði.
Ellegaard - sérhæfir sig í færiböndum, flutningslausnum og sérsniðnum kerfum fyrir matvælavinnslu, og hjálpar fyrirtækjum að hámarka efnismeðhöndlun, fækka framleiðsluhléum og bæta vinnuflæði.
Distell - sérhæfir sig í færanlegum fiskifitumælum og búnaði fyrir gæðamælingar, sem gerir framleiðendum kleift að meta hratt og örugglega á vinnustað breytur á borð við fituinnihald, án þess að þurfa á að halda flóknum greiningum á rannsóknarstofum.
Gestir geta kynnst vöruúrvalinu frá Hreinlætislausnum Áföngum á sýningarbás B20 á IceFish.
Til að fá frekari upplýsingar um hvernig best er að sýna á IceFish 2026, hafið samband við teymið okkar í gegnum netfangið sales@icefish.is.



