Áhugasamir fyrirlesarar geta nú sent inn tillögur að fyrirlestrum á ráðstefnum IceFish 2026.
Í ár munu ráðstefnur IceFish setja á oddinn nýjustu framfarir í fiskeldi og fullnýtingu sjávarafurða, með mikilli áherslu á raunveruleg áhrif á alþjóðavísu. Við hvetjum áhugasama fyrirlesara sérstaklega til að senda inn tillögur að erindum sem leggja áherslu á hagnýtar lausnir, reynslu af rekstri og mælanlegan árangur.
Ráðstefnan „Aquaculture – Driving Sustainable Growth” fer ofan í saumana á tækni, framleiðsluaðferðum og stefnumótun sem miða að því að gera ábyrgan vöxt greinarinnar mögulegan hérlendis og á alþjóðavettvangi.
Þar á meðal verður fjallað um:
• Fjárfestanlegir innviðir fyrir þróttmikið fiskeldi
• Gervigreind og ný tækni í aðsigi
• Velferð fiska og heildstæð stjórnun á líftíma þeirra
• Framleiðsla, fóðrun og endurhringrás fiskeldiskerfa (RAS)
• Fjármál og fjárfestingar
• Framtíð framleidds sjávarfangs í Bláa hagkerfinu: Stefnumótun, samstarf og alþjóðlegur vöxtur
Ráðstefnan „100% Fish for Profit” kannar til hlítar aðferðir við vinnslu hagnaðar úr öllum hlutum sjávarfangs, og hvernig hægt er með fullnýtingu að breyta fiskmeti í verðmætar vörur á alþjóðlegum mörkuðum. Ráðstefnan leiðir saman eigendur fyrirtækja, forstjóra og leiðtoga í útgerð, fiskeldi, vinnslu og aðfangakeðjum sjávarútvegs, sem miðla þekkingu sinni á spennandi nýsköpun, einstakri innsýn í framleiðslu og markaðsmál og reynslu af viðurkenndum viðkiptalíkönum.
Þar á meðal verður fjallað um:
• Aðalfyrirlestur: Alþjóðlegt samstarf fyrir alþjóðlegar áskoranir í sjávarútvegi
• Tækninýjungar í þágu fullnýtingar
• Uppskrift að árangri: Færanleg viðskiptalíkön
• Rannsóknir, þróun og nýmarkaðir fyrir lífafurðir úr sjávarfangi
• Stefnumótun, reglugerðir og sjálfbærni
• Nýsköpun og ný verkefni í 100% nýtingu sjávarfangs
• Fjárhagsleg sjálfbærni og aðlögunarhæfni
Áhugasamir fyrirlesarar skulu senda inn 250–300 orða ágrip af erindinu, ásamt stuttri ævi- og ferilsskrá og andlitsmynd fyrir 27. mars 2026.
Sendið þessar upplýsingar á netfangið: Info@icefishconference.com




