Gögn streyma að úr öllum áttum ... en enginn tími til að hugsa
September 22, 2026Eftir Press PR
Oxyguard
Baader
EquaFish
Deila þessari grein
Á ráðstefnunni „Aquaculture – Driving Sustainable Growth“, sem haldin var í fyrsta skipti á IceFish-sýningunni í gær, var kastljósinu beint að áhrifum sívaxandi gagnamagns og auknu hlutverki gervigreindar við úrvinnslu upplýsinga.
Í fyrra hluta ráðstefnunnar lýstu ýmsir sérfræðingar skoðunum sínum á áhrifum gervigreindar á fiskeldi. Þeir voru almennt sammála um að mikið gagnamagn væri ekki vandamál í sjálfu sér, en að úrvinnsla upplýsinganna, túlkun og viðeigandi aðgerðir í kjölfarið fælu í sér áskorun.
Eirik Lillebudal, forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins EquaFish, setti þessa umræðu í persónulegt samhengi og vísaði til reynslu sinnar úr norska hernum. Hann benti á að farsæll orrustuflugmaður væri ekki endilega sá sem flygi betri flugvél, heldur sá sem hefði betri skilning á aðstæðum hverju sinni. Með þetta í huga kappkostaði EquaFish að bjóða upp á bætta rekstrarmenningu þar sem gögn eru aðgengileg og nýtanleg fyrir þá sem þurfa á þeim að halda.
„Eini munurinn á þeim eintaklingi sem stýrir fiskeldi og þeim sem stýrir orrustuflugvél, er sá að fyrrnefndi hefur ef til vill meiri ráðrúm til að taka ákvarðanir en flugmaðurinn, sem breytir því þó ekki að heildarmyndin er flókin. Stjórnendur vilja ekki lenda í óvæntum uppákomum og þurfa alltaf að vera fimm skrefum á undan því sem gæti hent fiskinn í eldinu,“ sagði Eirik Lillebudal eftir umræðurnar.
„Gögnin sem berast eru stundum svo sundurlaus og dreifð að fólk í fiskeldi hefur ekki tíma til að tengja þau saman og greina nákvæmlega hvað er í gangi. Við gerum fiskeldisstöðvum því mjög auðvelt að skilja starfsemina hjá sér, það er undir stjórnandanum komið hvaða ákvarðanir eru teknar og hann getur raðað kerfinu upp að eigin vild.“ Í upphafi ráðstefnunnar benti Paw Peterson, forstjóri Oxyguard, á að áður fyrr hefði ríkt sú skoðun að vandamál stöfuðu af gagnaskorti, en svo væri ekki lengur. Hann lýsti því hvernig gervigreind breytir rauntímagögnum í stöðugri framleiðsluferla, hjá samstarfsaðilum fyrirtækisins í 130 löndum heimsins.
Bogdan Vornicu, yfirlíffræðingur Avascope, lýsti því hvernig umhverfisgögn og líffræðileg gögn eru samþætt til að auðvelda öruggari ákvarðanir í rekstri, og George Mantas frá AquaBioTech Group sýndi fram á hvernig ítarleg greining á hreyfingum fiska gerði fiskeldisstöðvum kleift að greina snemma merki um umhverfistengt álag á þá. Nils Rabe, alþjóðlegur sölustjóri Baader, lýsti því frá sjónarhóli framleiðanda vinnslutæknibúnaðar hvernig nýjasta kynslóð slíkra kerfa uppfylla fyllstu dýravelferðarkröfur um aflífun fiska, til að standast þau skilyrði sem um helmingur smásala í Bretlandi setur nú fiskeldisstöðvum sem þeir versla við.