Stálgrindarhús ehf. hefur um langt skeið staðið í fararbroddi íslenskra fyrirtækja í hönnun
og smíði slíkra bygginga. Fulltrúar Stálgrindarhúsa munu taka vel á mótum gestum IceFish
á sýningarbás P19 á IceFish.
Fyrirtækið hefur í tæpan aldarfjórðung, eða allt síðan 2002, hannað og reist fallegar byggingar sem eru hagkvæmar án þess að það bitni á gæðunum.
Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi og skilvirkri uppsetningu háreistra stálgrindarhúsa í hæsta gæðaflokki, með því að nota efni á borð við einangraðar samlokueiningar, glerveggi og steinsteypugólf. Þessi byggingaaðferð tryggir að mannvirkin séu ekki einungis endingargóð heldur líka hagkvæm í uppsetningu.
Fyrirtækið hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á að skila af sér hágæða byggingum með
nútímalegum efnivið og hönnun, til að tryggja viðskiptavinum hámarks virði úr fjárfestingum sínum. Nýsköpun og skilvirkni eru leiðarljós fyrirtækisins í öllu því sem viðkemur stálgrindarbyggingum.
Þessi stefna hefur gefist afar vel og forsvarsmenn fyrirtækisins eru sannarlega stoltir af samstarfi sínu við kaupendur, arkitekta og verktaka frá fyrstu hugmynd að byggingunum
til lokaútfærslu þeirra.
Eitt af nýjustu verkefnum fyrirtækisins er bygging frystigeymslu fyrir Skinney Þinganes á
Hornarfirði. Um er að ræða 100% sjálfvirka róbóta frystigeymslu – sú fyrsta sinnar tegundar
á Íslandi. Róbótar munu annast alla meðhöndlun vörubretta milli frystihúss og útskipunarbyggingar.
Til að heimsækja IceFish og hitta fulltrúa Stálgrindarhúsa geturðu sótt aðgangspassann þinn hér.




