
Viskubrunnur, nýr valkostur á IceFish 2026
Viskubrunnurinn (e. Knowledge Box) er nýtt rými á IceFish, ætlað fyrir kynningar á vörum og þjónustu sýnenda og þekkingu sérfræðinga á vettvangi atvinnuveiða og fiskeldis.
Um er að ræða sal fyrir fjörutíu áhorfendur, staðsettur mitt á milli veitingasvæðisins og hinnar nýju Miðstöðvar fiskeldis. Þar gefst gestum tækifæri til að upplifa milliliðalaust allt það sem sýnendur og sérfræðingar í atvinnulífinu hafa fram að færa á sýningunni.
Nýjasta tækni á sviði svo kallaðra „hljóðlausra ráðstefna” býður þátttakendum upp á að njóta hágæða hljóðs án truflunar af klið/glym frá sjálfri sýningunni.
Hvað er í boði?
Viskubrunnurinn mun bjóða upp á fjölbreytt úrval ókeypis viðburða, þar á meðal:
• Kynningar á nýjum vörum og þjónustu
• Sýningar í beinni
• Tæknilegar kynningar
• Reynslusögur úr atvinnulífinu
• Innsýn í atvinnuveiðar og fiskeldi
• Það helsta í nýsköpun og tækni
Ekki þarf að skrá sig fyrirfram á viðburðina.
Dagskrá viðburða
Heildardagskrá Viskubrunnsins verður birt hér á vefsíðu IceFish þegar nær dregur sýningunni.
Ef þú hefur áhuga á að kynna þitt fyrirtæki, vörur, þjónustu eða annað í Viskubrunninum, hafðu samband við tmetcalfe@mercatormedia.com




