
Getur sterkt stjórnkerfi stutt við vöxt fiskeldis fremur en að hefta hann?
Vaxandi umfang fiskeldis um víða veröld hefur kveikt margvíslegar spurningar
varðandi traust og trúverðugleika, lagaramma, reglugerðir og markaðsaðgengi, og
má segja að um sé að ræða lykilatriði þegar horft er til árangurs greinarinnar til
lengri tíma.
Egill Þorri Steingrimsson, sem stýrir samhæfingarsviði Matvælastofnunar, mun fara
í kjölinn á þessum brýnu atriðum á ráðstefnunni Aquaculture – Driving Sustainable
Growth, sem haldin er samhliða IceFish-sýningunni 22. september nk.
Egill Þorri mun ræða reynslu Íslendingu í þessum málum og varpa ljósi á hvernig
árangursrík stefna, öflugt opinbert eftirlit og trúverðugir staðlar varðandi matvæla-
öryggi, dýraheilbrigði og velferð fiska mynda grunninn að sjálfbærum vexti. Hann
leggur áherslu á að þessir þættir séu langt frá því að vera hindranir heldur hafi þeir
sífellt meiri þýðingu fyrir fyrirtæki sem vilja tryggja sér aðgang að alþjóðlegum
mörkuðum og viðhalda trausti neytenda.
Erindi Egils Þorra mun einnig fjalla um mikilvægi samstarfs milli stjórnvalda,
eftirlitsaðila, vísindastofnana og atvinnulífs. Hann bendir á að til að tryggja að fiskeldi
þróist á ábyrgan og samkeppnishæfan hátt í viðskiptum sé nauðsynlegt að skapa
samræmi og samhæfingu á milli þessara aðila.
Egill býr yfir víðtækri reynslu af því hvernig reglugerðarkerfi virka við raunverulegar
aðstæður, enda hefur hann m.a. starfað sem dýralæknir, hjá ESA, eftirlitsstofnun
EFTA, sem yfirdýralæknir Grænlands og hjá Mattilsynet í Noregi þar sem hann stýrði
deild matvælaeftirlits.
Fyrirlestur hans mun veita rekstraraðilum, stjórnmálamönnum og stjórnendum í allri
framboðskeðju fiskeldis dýrmæta innsýn í þessi mál og hvernig best er að vega og
meta vöxt og þörf fyrir gagnsæi, ábyrgð og langtíma traust í fiskeldi.
Fyrir frekari upplýsingar og til að bóka þátttakendapassa, heimsækið vefsíðu IceFish-
ráðstefnunnar hér.




