
Þrír himinlifandi námsstyrkþegar á Íslensku sjávarútvegsverðlaununum
Fisktækniskólinn gegnir sérstöku hlutverki á Íslandi og einnig á IceFish 2026.
Skólinn tryggir að nemendur sem þaðan útskrifast búi yfir þeirri færni og þekkingu
sem krafist er við störf í sjávarútvegi, fiskeldi og hafrannsóknum, og leggur þannig
ómælt af mörkum til að móta framtíð sjálfbærs og háþróaðs íslensks sjávarútvegs.
Fisktækniskólinn er einn af stuðningsaðilum IceFish 2026 og mun að sjálfsögðu
vera með bás á sýningunni, sem stendur yfir dagana 22.-24. september nk.
Skólinn hefur einnig notið þess um árabil að IceFish veitir úrvalsnemendum þar
námsstyrki, sem endurspegla einbeittan vilja sýningarhaldara til að fjárfesta í
framtíð sjávarútvegs og fiskeldis á Íslandi. Skipuleggjandi sýningarinnar, Mercator
Media, veitir þremur nemendum skólans styrki á hverju ári, að upphæð 300 þúsund
krónur hver.
Þríeykið sem varð fyrir valinu í ár eru þær Katarzyna Staszek, Ewa Jaros og
Malgorzata Barbara Sworowska, en allar stunda þær nám í gæðastjórnun við
Fisktækniskólann, ásamt því að starfa hjá íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum.
Katarzyna starfar hjá Brim í Reykjavík, Ewa hjá Jakob Valgeiri í Bolungarvík og
Malgorzata hjá Nýfiski í Sandgerði. Þær fengu fyrri hluta námsstyrkjanna afhentan
í mars sl. við hátíðlega athöfn í Íslenska sjávarklasanum.
Katarzyna, Ewa og Malgorzata munu fá seinni hluta námsstyrkja sinna afhentan
á Íslensku sjávarútvegsverðlaununum, sem haldin verða á opnunardegi IceFish,
þann 22. september nk.
Fisktækniskólinn var stofnaður í Grindavík árið 2010. Námsskrá hans sameinar
hefðbundna þekkingu og nýstárlegar aðferðir til að stuðla að langtímaheilbrigði
og lífvænleika vistkerfa sjávar. Námið er hannað með það í huga að nemendur
öðlist alhliða skilning á öllum þáttum fiskveiða, fiskeldis, sjávarlíffræði, vistfræði og
stefnumótunar í sjávarútvegi.




