
Nú þegar rétt rúmur mánuður er þangað til að IceFish 2026 hefst, geta fyrirtæki byrjað að bóka ókeypis fyrirtækjastefnumót, B2B, á sýningunni. Þessir gagnlegu og árangursríku viðburðir auka gildi og mikilvægi sýningarinnar fyrir bæði sýnendur og gesti.
Fyrirtækjastefnumót augliti-til-auglitis hafa um árabil notið mikilla vinsælda á IceFish-sýningunum og á seinustu sýningu fóru fram 98 vel heppnaðir slíkir fundir.
Fyrirtækjastefnumótin eru skipulögð af Enterprise Europe Network á Íslandi og eru í umsjá Rannsóknarmiðstöðvar Íslands, Rannís.
Skráning og þátttaka eru ókeypis fyrir þá sem sækja sýninguna.
Fyrirtækjastefnumótin veita einstakt tækifæri til að skapa ný tengsl þvert yfir landamæri og heimsálfur, og hitta mögulega viðskiptafélaga í eigin persónu. Þátttakendur eru meðal annars fyrirtæki, klasar, alþjóðlegt forystufólk og hagsmunaaðilar í rannsóknum og nýsköpun, og koma úr sjávarútvegi, fiskeldi, vinnslu, skipasmíðum- og viðgerðum, markaðsstarfsemi, dreifingu, úthafsfiskiveiðum og fjölmörgum öðrum tengdum atvinnugreinum.
Þátttakendur hittast á markvissum 20 mínútna fundum, sem hægt er að velja og staðfesta fyrirfram.
Til að taka þátt í fyrirtækjastefnumótunum skaltu skrá þig með því að nota tengilinn hér að neðan:




