
Samstarfsaðili IceFish, Íslenski sjávarklasinn, mun standa fyrir einstökum viðburði á IceFish 2026.
Í fyrsta sinn munu fulltrúar frá alþjóðlegu tengslaneti systurklasa hans á sviði sjávarútvegs
og haftengdrar starfsemi (e. Sister Ocean Clusters), alls 20 klasar frá öllum heimshornum á mismunandi stigum þróunar, hittast á einum og sama stað, Íslandi.
„Þessi samkoma markar tímamót í alþjóðlegu samstarfi á sviði haftengdrar starfsemi og við hlökkum mikið til að hýsa viðburðinn,“ segir Alexandra Leeper, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans.
Sjávarklasar frá Mexíkó og Grænlandi eru á meðal nýjustu klasanna í tengslanetinu, sem þýðir að netið mun hafa stækkað til nýrra svæða í heiminum áður en sjálf samkoman er haldin og verður enn öflugra en fyrr.
Á þeim þremur dögum sem IceFish stendur yfir verður boðið upp á fundi af margvíslegum toga og ótal tækifæri til tengslamyndunar. Þar á meðal er sérstakur viðburður fyrir heiðursgesti og sýnendur við afhendingu hinna virtu Íslensku sjávarútvegsverðlauna fyrsta daginn, þriðjudaginn 22. september, auk hádegisverðarfundar fyrir fyrirlesara og gesti á ráðstefnum IceFish; Aquaculture - Driving Sustainable Growth og 100% Fish for Profit.
Til að mæta á IceFish dagana 22.–24. september nk. má nálgast aðgangspassa hér.




