
Nýsköpunar- og tæknifyrirtækið GreenFish sýnir á IceFish-sýningunni á næsta ári nýtt spálíkan, sem hjálpar nú þegar mörgum skipum í íslenska veiðiflotanum að kljást við óvissuna samfara makrílveiðum.
Makríllinn í Norður-Atlantshafi hefur löngum verið alræmdur fyrir að vera sú fiskistofn sem einna erfiðast er að fylgjast með og finna þegar sá gállinn er á honum. GreenFish hefur nú þróað spálíkan með gervigreind sem sýnir að hægt er að spá fyrir með mikilli nákvæmni um ferðir jafnvel duttlungafyllstu fiskistofna.
Gervigreindarlíkan GreenFish notast við gögn frá gervihnöttum, sjólags- og veðurgögn, afladagbækur og fleira, upplýsingar sem ná jafnvel áratugi aftur í tímann, og keyrir þær í gegnum eina öflugustu ofurtölvu heimsins. Niðurstaðan er átta daga spá um vænlegustu veiðimiðin, sem uppfærist sjálfkrafa eftir því sem aðstæður í hafi breytast.
Fyrirtækið valdi makrílstofninn til að þróa líkanið sökum þess hversu torvelt er að spá fyrir um ferðir stofnsins. Valið byggðist á þeirri hugsun að ef tæknin gæti nýst í makrílveiðum, gæti hún virkað við veiðar á öllum öðrum fiskistofnum.
„Tækni GreenFish er nú notuð af útgerðarfyrirtækjum um allan heim og útbýr spár fyrir margvíslegar fisktegundir í heimshöfunum,“ segir Sveinn Sigurður Jóhannesson, forstjóri GreenFish.
GreenFish er nú byggja á þeim árangri sem náðst hefur með spálíkaninu til að undirbúa markaðssetningu á þessari tæknilausn fyrir síldveiðar og þar á eftir er horft til kolmunnaveiða og loðnuveiða í Norður-Atlantshafi.
Á sama tíma er vinsælasta tæknilausn fyrirtækisins áfram „GreenFish Tailored”, sem svo kallast. Um er að ræða sérsniðna þjónustu sem veitir viðskiptavinum fyrirtækisins einkarétt á spám fyrir afmörkuð veiðisvæði, hvort sem um er að ræða túnfisk, uppsjávar- eða botnfisktegundir. Þessar spár greina ekki aðeins líkleg veiðisvæði heldur spá einnig fyrir um fiskstærð, gæði og mögulegan meðafla.
„Með GreenFish Tailored fá fyrirtæki einkarétt á spám fyrir sín veiðisvæði; innsýn sem veitir þeim samkeppnisforskot,“ segir Sveinn Sigurður.
Hann segir að með með því að nýta þessar spár geti útgerðir sparað tíma við aflaleit og dregið úr eldsneytis- og kolefnislosun, samtímis því að nýta betur kvótann og auka aflagæði. Forkólfar GreenFish telja því ljóst að þessar tæknilausnir auki verðmætasköpun og lækki kostnað útgerða til muna.
„Gervigreind er að ryðja sér til rúms í sjávarútvegi, líkt og í mörgum öðrum atvinnugreinum, og færir með sér mikla verðmætasköpun. Gervigreind er ekki tískubóla; hún mun aðeins halda áfram að þróast. Útgerðarfyrirtæki sem átta sig á þessari breytingu og aðlagast henni munu öðlast forskot á samkeppnisaðila sína,“ segir Sveinn Sigurður.
Höfuðstöðvar GreenFish eru á Íslandi en fyrirtækið heldur líka úti skrifstofu í Kaupmannahöfn. Hjá því vinnur fjölbreyttur hópur sérfræðinga – allt frá gervigreindar- og gagnasérfræðingum til geimtæknifræðinga – að því sameiginlega markmiði að mæta vaxandi kröfum sjávarútvegsins í nútímanum.




