
Grindavíkingar mæta öflugir til leiks á IceFish. Fyrirtæki úr allri virðiskeðju sjávarútvegs
í bænum sameina krafta sína til að sýna fram á þá sérþekkingu, þjónustu og tækifæri sem
finnast í einu rótgrónasta fiskveiðisamfélagi Íslands.
Hjarta Grindavíkur hefur alltaf verið fiskveiðar og hafið, en vistkerfið í kringum þann
miðpunkt nær miklu lengra. Í dag tengjast fiskveiðar og framleiðsla sjávarafurða við
hafnarþjónustu, tækni, flutninga, nýsköpun, fiskeldi, ferðaþjónustu og önnur fyrirtæki sem
styðja við atvinnugreinina og fólkið sem starfar við hana.
Þessir fjölbreyttu hlutar atvinnulífs Grindavíkur mætast á einum sameiginlegum vettvangi
á IceFish 2026 – sem sýnir ekki aðeins styrk einstakra fyrirtækja, heldur einnig tengslin,
þekkinguna og innviðina sem gera Grindavík að aðlaðandi stað til að stunda viðskipti, vinna
saman og fjárfesta.
„Koma Grindavíkinga á IceFish snýst um miklu meira en að kynna einstök fyrirtæki. Hún
snýst um að sameina styrkleika Grindavíkur og sýna fram á hvernig samvinna, nýsköpun og
frumkvöðlastarfsemi geta gegnt lykilhlutverki í að byggja upp sterkt og fjölbreytt hagkerfi á
staðnum og að lokum samfélagið í heild sinni,“ segir Ásta Kristín Sigurjónsdóttir,
framkvæmdastjóri Ferðaklasans og verkefnastjóri Grindavík - Saman í sókn, átaksverkefnis
um endurreisn, eflingu og framtíðarmótun atvinnulífs bæjarins.
Þann 10. nóvember 2023 var Grindavíkurbær, sem þá taldi um fjögur þúsund íbúa, rýmdur
eftir að gos hófst við Sundhnúksgíga austur af Sýlingarfelli og hraun tók að streyma í átt að
byggðinni. Nú tæpum þremur árum síðar er unnið ötullega að endurreisn samfélagsins, og
þrátt fyrir miklar áskoranir síðustu missera býr Grindavík enn yfir mikilli þekkingu, spennandi
innviðum og frumkvöðlaanda.
IceFish býður fyrirtækjum bæjarins upp á alþjóðlegan vettvang til að sýna fram á þann styrk
og horfa bjartsýnum augum til framtíðar.
Grindavík er opin, starfandi og tilbúin fyrir viðskipti.
Hittu Grindavíkinga á IceFish 2026.
Fyrir frekari upplýsingar um hvernig best er að sýna á IceFish, hafið samband við teymið okkar
í gegnum netfangið sales@icefish.is




