
Hampiðjan hefur á undanförnum árum fært út kvíarnar í sölu á framleiðsluvörum og þjónustu fyrir fiskeldi, og hefur nú ákveðið að sameina alla þá starfsemi í nýtt félag sem fengið hefur nafnið ELDI. Nýja félagið mun leiða áframhaldandi vöxt Hampiðjusamstæðunnar á sviði fiskeldis.
ELDI verður til staðar á sýningarrými Hampiðjunnar á IceFish 2026, í básum D50 og E42.
Hampiðjan keypti fyrirtækið Vónin í Færeyjum árið 2016, og með kaupunum á Mørenot árið 2023 jókst mikilvægi fiskeldis enn frekar í starfsemi samstæðunnar. Fiizk Protection bættist í hópinn haustið 2024, en það fyrirtæki hannar og framleiðir hlífar til að verjast laxalús.
Yfirtaka á indverska fyrirtækinu Kohinoor fyrr á þessu ári bætti við lykilþáttum í framleiðslu búnaðar fyrir fiskeldi. Mikilvægasti hluti þeirra er hagkvæm framleiðsla á fiskeldisnetum, sem er mjög vinnuaflsfrek allra jafna.
Í kjölfar síðast nefndu yfirtökunnar var tekin ákvörðun um að sameina alla starfsemi tengdri fiskeldi í eitt alþjóðlegt fyrirtæki, ELDI, sem hefur höfuðstöðvar sínar í Noregi. Nýja móðurfélagið ber nafnið ELDI Holding.
Í Noregi verður umfangsmikil starfsemi, enda stærsta laxeldislands heims. Undir ELDI verða fyrst í stað 7 dótturfélög, staðsett í Kanada, á Íslandi, í Færeyjum, Noregi, Skotlandi og á Spáni. Þar að auki er nýstofnað félag í Chile og tvö önnur verða stofnuð á næstu vikum í Óman og Sádi-Arabíu. Alls munu því 10 félög verða undir hatti ELDI á næstu mánuðum.
ELDI er að fullu í eigu Hampiðjunnar, bæði beint og í gegnum dótturfélögin Vónin í Færeyjum og Mørenot í Noregi. Öll félög innan ELDI fá hið nýja nafn, en seinni hluti þess tilgreinir landfræðilega staðsetningu viðkomandi fyrirtækis, svo sem ELDI Ísland, ELDI Kanada, ELDI Noregur o.s.frv.
Thomas Berg Myrvold verður forstjóri ELDI, en hann var forstjóri Mørenot Aquaculture þegar Hampiðjan keypti fyrirtækið. Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar hf., verður stjórnarformaður ELDI.
Ekkert annað fyrirtæki sem veitir þjónustu við fiskeldi hefur jafn margar þjónustumiðstöðvar og ELDI, eða alls 14 talsins. Þær sjá m.a. um þvott á fiskeldisnetum, viðgerðir, gegndreypingu og vottun samkvæmt norska staðlinum NS 9415.
Starfsmannafjöldi ELDI á heimsvísu verður yfir 500 manns, en heildarfjöldi starfsmanna Hampiðjunnar er nú um 2.700.
Með því að stofna ELDI verða miklar breytingar innan Hampiðju-samsteypunnar, sem nýtti áður mörg nöfn fyrir viðkomandi rekstur sem fyrr segir. Í þremur þeirra fyrirtækja sem hafa rekið bæði fiskeldi og veiðarfæraþjónustu verður fiskeldihlutinn aðskilinn frá öðrum rekstri. Þannig verður fiskeldisþjónustan undir nafninu Hampiðjan Ísland á Ísafirði, rekin héðan í frá sem sérstakt fyrirtæki undir nafninu ELDI Iceland.
Fiskeldisþjónustan í Færeyjum hefur verið staðsett í Nordskála, einni af þremur starfstöðvum Vónarinnar þar, og mun héðan í frá heita ELDI Færeyjar. Hinar tvær eru annars vegar í Þórshöfn, þar sem botnvörpur eru framleiddar, og hins vegar í Fuglafirði, þar sem flotvörpur eru smíðaðar og lagfærðar.
Fiskeldishlutinn í starfsemi Vónin Refa í Noregi verður aðskilinn frá veiðarfærahlutanum og sameinaður Mørenot Aquaculture undir nafninu ELDI Norway.
Eftir þessar breytingar verður öll sú starfsemi Hampiðju-samsteypunnar sem tengist fiskeldi því skýrt aðskilin frá hinum tveimur helstu viðskiptasviðum hennar, þ.e. veiðarfærum og útgerð.
Þessi endurskipulagning fyrir fiskeldisþjónustuna hefur í för með sér mikilvæga hagræðingu, enda nú unnt að samhæfa alla markaðsstarfsemi, vöruþróun, þjónustuframboð og framleiðslu með skýrri stefnu. Ljóst þykir að breytingin færi nýjan kraft í skipulag og sókn fiskeldishluta starfseminnar.
Árið 2024 nam sala til fiskeldis um 27% af heildartekjum Hampiðjunnar, eða um 86 milljónum evra. Á fyrstu þremur ársfjórðungum þessa árs hefur salan náð 88 milljónum evra og verður líklega nálægt 113 milljónum evra á þessu ári.
Til að verða hluti af nýju Fiskeldismiðstöðinni á IceFish 2026, ásamt Hampiðjunni og ELDI, er einfaldast að hafa samband með því að senda tölvupóst á netfangið ttatum@mercatormedia.com.
Image:
Chairman of the Board of ELDI: Hjörtur Erlendsson, CEO of Hampidjan hf.




