IceFish 2026 hefst – gestir og sýnendur reiðubúnir til tengslamyndunar
22. september 2026Eftir Press MW
Iceland Ocean Cluster
MEST
Aquaculture Conference
MAST
Deila þessari grein
IceFish 2026 hefst – gestir og sýnendur reiðubúnir til tengslamyndunar
Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin, IceFish 2026, opnaði formlega í dag. Gestir og sýnendur hittust í sýningarhöllinni í Smáranum/Fífunni í Kópavogi, reiðubúnir til að mynda ný tengsl og skerpa á gömlum, kynna og kynna sér nýjungar og stunda viðskipti á sviði sjávarútvegs, fiskeldis og vinnslu sjávarfangs.
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, setti IceFish 2026 og sagði m.a. eftirfarandi í ávarpi sínu:
„Ótal margt hefur breyst síðan fyrsta Íslenska sjávarútvegssýningin var haldin árið 1984. Á þeim tíma var ekkert sýningarapp í símum gesta, gervigreind aðstoðaði ekki við ákvarðanatöku og fjarvöktun fólst í að einhver stæði nógu nærri til að fylgjast með gangi mála.
Eitt stendur þó óbreytt frá þeim tíma: Framfarir byggjast á því að fólk hittist í eigin persónu, beri saman bækur sínar, deili reynslusögum og sé reiðubúið að prófa nýja og endurbætta nálgun og leiðir.
Dagskrá IceFish 2026 endurspeglar þá siglingarstefnu sem einkennir sjávarútveg og fiskeldi nútímans. Hin nýja Miðstöð fiskeldis, Viskubrunnurinn (e. Knowledge Box), alþjóðlegu ráðstefnurnar, fyrirtækjastefnumótin og Íslensku sjávarútvegsverðlaunin, skapa öll tækifæri til að miðla hagnýtri þekkingu og veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur.
Dýrmætasta niðurstaða sýningar er ekki alltaf skipulögð fyrirfram. Hún hefst á samtali milli fólks sem áttar sig á því að það getur áorkað eitthvað í sameiningu. Ég óska öllum gestum og sýnendum ánægjulegrar dvalar á Íslandi með von um árangursríka fundi og gott gengi í viðskiptum.”
Hápunktar opnunardagsins: „Knowledge Box“ og kynningar sýnenda
Dagskrá viðburðarins í Viskubrunninum („Knowledge Box“) hófst með formlegri opnunarathöfn kl. 10:15, sem setti tóninn fyrir stútfullan dag sem býður upp á áhugaverða innsýn í atvinnugreinarnar og líflegar kynningar. Sýnendur halda kynningar í Viskubrunninum allan daginn og gefa gestum tækifæri til að heyra milliliðalaust frá þeim sem bjóða upp á nýjar tæknilausnir, nýja nálgun varðandi skilvirkni í vinnslu og ný verkefni tengd sjálfbærni.
Meðal staðfestra dagskrárliða er erindi Mouritz Mohr, forstjóra MEST, sem fjallar um nýsmíði og háþróaðar skipalausnir fyrir sjávarútveg og fiskeldi á milli kl. 13:10 og 13:40.
Nýja ráðstefnan um fiskeldi stuðlar að sjálfbærum vexti
Dýrmæt viðbót við dagskrá IceFish 2026 er eins dags ráðstefna undir yfirskriftinni „Aquaculture – Driving Sustainable Growth“, en hún er haldin á fyrstu hæð sýningarhallarinnar. Ráðstefnan hefst á ávarpi formannsins, Ólafar Helgu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðsmála (CPO) hjá Kaldvík, áður en aðalerindið hefst, en það ber yfirskriftina „Blue Food Futures: Policy, Partnership & Global Growth“ (Framtíð sjávarafurða: Stefnumótun, samstarf og alþjóðlegur vöxtur).
Meðal fyrirlesara eru Egill Þorri Steingrímsson frá Matvælastofnun (MAST), Clara Jegousse verkefnastjóri rannsókna hjá Íslenska sjávarklasanum og Kevin Edwards frá GDST. Þau munu fjalla um grundvöll stefnumótunar, alþjóðlega þróun í fiskeldi og staðla um rekjanleika fyrir sjálfbærar aðfangakeðjur.
Hægt er að kaupa miða á fiskeldisráðstefnuna á netinu allan daginn, sem gerir gestum á sýningarsvæðinu kleift að taka þátt í dagskrárliðum og dýpka skilning sinn á því hvernig stuðla megi að sjálfbærum vexti í fiskeldi og tengdum greinum. Ef þörf er á aðstoð við bókun má leita til skrifstofu skipuleggjenda.
Sýningarsvæðið: Tengslamyndun og viðskipti í forgrunni IceFish
IceFish 2026, sem er fimmtánda sýningin frá upphafi, og ráðstefnurnar, leiða saman á einn stað þúsundir fulltrúa úr sjávarútvegi og fiskeldi og tengdum greinum frá öllum heiminum, og skapa opinn vettvang fyrir tengslamyndun, samstarf og viðskiptafundi. Þar sem ráðstefnur og sýningin fara fram á sama stað geta þátttakendur auðveldlega farið á milli tæknilegra erinda, vörukynninga og persónulegra funda fyrir tengslamyndun.
Sýnendur kynna nýjustu kynslóðir tækjabúnaðar fyrir vinnslu sjávarafurða, endurbætta hreinlætishönnun og samþættar lausnir, sem miða að því að auka skilvirkni, vörugæði og arðsemi, óháð tegund eða virðiskeðju. Fyrsti dagurinn snýst hjá mörgum gestum um að kynna sér tækni, bera saman birgja og hefja viðræður sem gætu leitt til samninga á meðan sýningunni stendur.