Nú er búið að ákveða hverjir munu stýra annarri af tveimur ráðstefnum IceFish í ár. Sú ráðstefna ber yfirskriftina 100% Fish for Profit og fjallar um fullnýtingu sjávarafurða og vinnslu virðisaukandi vöru úr sjávarfangi.
Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans, verður aðalstjórnandi 100% Fish for Profit og mun þar leiða háborð frummælenda sem koma úr röðum alþjóðlegra sérfræðinga á sviði fullnýtingar sjávarfangs. Þeir munu veita ráðstefnugestum ómetanlega innsýn í hvernig unnt er að hámarka arðsemi fjárfestinga í sjávarútvegi með því að vinna verðmætt hráefni úr þeim hluta aflans sem áður hefur verið kastað á glæ. Dr. Alexandra Leeper, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans, mun gegna hlutverki aðstoðarstjórnanda ráðstefnunnar og stýra þar umræðum.
Ráðstefnan 100% Fish for Profit er byggð á grunni eldri ráðstefnu, Fish Waste for Profit, en hún naut mikilla vinsælda hjá þátttakendum á seinustu IceFish-sýningum. 100% Fish for Profit er ómissandi viðburð fyrir alla þá sem vilja kynna sér nýsköpun í greininni, nýjungar sem skara framúr í dag og hagnýtar lausnir, og ekki síður þá sem vilja tækifæri til að búa til tengsl við lykilhagsmunaaðila í greininni.
Þór Sigfússon er íslenskur frumkvöðull, rithöfundur og fyrirlesari.
Hann hefur verið alþjóðlegur talsmaður 100% nýtingar á sjávarfangi og þróun sjávarútvegsklasa um árabil. Íslenski sjávarklasinn, sem Þór stofnaði, hefur nú eignast ellefu systurklasa um heim allan.
Þór er höfundur níu bóka sem fjalla m.a. um hvernig útrýma má allri sóun á dýrmætum úrgangi sjávarfangs, alþjóðleg viðskipti, þekkingarnet og lax. Nýjustu bækur hans eru annars vegar The New Fish Wave - Igniting the Seafood Industry, og hins vegar 100% Fish, en þær eru báðar gefnar út hjá bandaríska bókaforlaginu Leete’s Island Books.
Alexandra Leeper hefur í rannsóknum sínum og starfi beint sjónum sínum sérstaklega að þeim vettvangi sjávarútvegs sem sameinar framleiðslu og vinnslu sjávarafurða, hringrásarhagkerfið og innviðakerfið í sjávarútvegi. Hún hefur aðstoðað fjölmörg fyrirtæki og útgerðarsvæði í heiminum við að endurskilgreina og umbreyta nýtingu þeirra á auðlindum sjávar, í þeim tilgangi að skapa verðmæti í stað þess að sólunda þeim.
Alexandra er búsett á Íslandi og gegnir starfi framkvæmdastjóra Íslenska sjávarklasans, samfélags nýsköpunarfyrirtækja sem spanna allt svið hins svokallaða Bláa hagkerfis, og gerir góðum hugmyndum í þeim geira kleift að vaxa og dafna og verða að veruleika.
Ísland hefur verið brautryðjandi í fullnýtingu sjávarfangs, þróunar-og viðskiptalíkan sem kallast á ensku 100% Fish, en það líkan hefur nú þegar öðlast viðurkenningu um víða veröld sem merkisberi og fyrirmynd fyrir arðbæra og umhverfisvæna fullnýtingu sjávarfangs. Íslenski sjávarklasinn vinnur ötullega að aðlögun og útbreiðslu þessa líkans um allan heim, í nánu samstarfi við sístækkandi hóp systraklasa sinna í öðrum löndum. Íslenski sjávarklasinn er einnig um þessar mundir að safna fé fyrir fjárfestingarsjóðinn Blue Nova Ventures.
Alexandra er á meðal fremstu leiðtoga á heimsvísu í þróun og eflingu alþjóðlegra vistkerfa, og tengir í starfi sínu saman alþjóðlegt net frumkvöðla í Bláa hagkerfinu.
Alexandra er með doktorsgráðu í sjálfbæru fiskeldi og hringrásarhagkerfinu, meistaragráðu í umhverfisfræðum og auðlindum sjávar, og BA-gráðu í líffræði og haffræði. Hún stofnaði fyrirtækið Hringvarma á seinasta ári, en það einbeitir sér að nýsköpunarþróun á hringrásarhitakerfi sem nýtir umframhita frá iðnaði til að knýja matvælaframleiðslu á viðkomandi stað.
Til að sjá allar upplýsingar um ráðstefnuna 100% Fish for Profit og bóka sæti á hana smellið HÉR.




