Fyrsti dagur IceFish 2026 er að baki og markaði öfluga byrjun á þriggja daga sýningunni í Smáranum/Fífunni. Ráðstefnan Aquaculture – Driving Sustainable Growth sló tóninn og sýningin sjálf laðaði að þúsundir gesta, en dagurinn endaði síðan á hátíðlegri afhendingu Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldisverðlaunanna. Hægt er að rifja upp helstu augnablik fyrsta dagsins í þessu stutta myndbandi:
Annar dagur IceFish hefst á ráðstefnunni 100% Fish for Profit og kynningum/erindum í Viskubrunninum (e. Knowledge Box). Nú þegar annar dagur IceFish 2026 er hafinn beinist athyglin að tveggja daga ráðstefnunni 100% Fish for Profit. Þar er fjallað um hvernig megi nýta hliðarafurðir sjávarfangs til að skapa verðmætar vörur og ný viðskiptatækifæri. Dagskráin stefnir saman sérfræðingum úr greininni sem skoða hagnýtar leiðir til að auka verðmæti sjávarfangs, draga úr sóun og nýta auðlindir betur í sjávarútvegi og fiskeldi. Samhliða ráðstefnunni fara fram ókeypis fyrirlestrar og kynningar í Viskubrunninum (e. Knowledge Box) allan daginn, þar sem fulltrúar frá NP Innovation, Searas AS, EquaFish og Thyboron Trawldoor miðla gestum þekkingu sinni. Gestir geta einnig nýtt sér B2B-Fyrirtækjastefnumótin, sem skapa tækifæri til að hitta mögulega samstarfsaðila, kanna ný viðskiptatækifæri og mynda tengsl við aðra sýnendur og fagfólk úr greininni.