IceFish er ávallt mikilvægur og ómissandi viðburður fyrir sjávarútveginn og fiskeldið og sýningin verður sannarlega glæsilegri en nokkru sinni dagana 22.-24. september nk. Í Smáranum/Fífunni.
IceFish gegnir forystuhlutverki sem vettvangur fyrir fiskveiðar, fiskeldi og vinnslu sjávarafurða. Sýningin leiðir saman leiðtoga í þessum greinum, frumkvöðla, tækniframleiðendur og sérfræðinga í sjávarútvegi frá öllum heimshornum.
Sýningin í ár býður upp á þétta dagskrá með ráðstefnum, kynningum og erindum í Viskubrunninum nýja, vörukynningum í beinni, ásamt fjölmörgum tækifærum til að koma á viðskiptasambönd og tengslum. Sýningin og viðburðir sem henni tengjast eru sérsniðin til að aðstoða gesti við að öðlast dýrmæta innsýn í greinina, uppgötva nýjungar og tengjast fólki frá öllum heimshornum, fólkinu sem tekur lykilákvarðanir í allri virðiskeðju sjávarútvegs.
Viskubrunnurinn
Viskubrunnurinn (e. The Knowledge Box) er sérstakt salarrými þar sem í boði verða ókeypis fyrirlestrar og vörukynningar frá sýnendum og sérfræðingum í sjávarútvegi og fiskeldi á IceFish.
Staðfestir fyrirlestrar/kynningar:
WAGNER Fire Safety AS: Kostir brunavarna með súrefnisdælingarkerfum.
Mouritz Mohr, forstjóri MEST: Kynnir glænýja og stóra þurrkví.
CatchWise: Kynning á MyCatch: Notaðu þín eigin sögulegu veiðigögn fyrir snjallari veiðar.
Og margt fleira ...
Tengslamyndun og viðskiptatækifæri
Fyrirtækjastefnumót
Þriðjudaginn 22. september og miðvikudaginn 23. september | 12:00 - 16:00
Skapaðu þýðingarmikil viðskiptatengsl með fyrirfram ákveðnum fundum með fagfólki í greininni, birgjum, kaupendum og þeim sem taka lykilákvarðanir í allri virðiskeðjunni í sjávarútvegi og fiskeldi.
Fyrirtækjastefnumótin eru hönnuð til að hámarka nýtinguna á heimsókn þinni á IceFish og bjóða upp á einfalda og áhrifaríka leið til að bera kennsl á ný tækifæri og styrkja þitt faglega tengslanet.
Til að skrá þig á fyrirtækjastefnumót smellið hér:
Forðist biðraðir, fáið aðgangspassa núna
Til að gera heimsóknina á IceFish eins skilvirka og mögulegt er geta gestir nú skráð sig á vefsíðu IceFish til að fá aðgangspassann sinn, icefish.is/entry-badges.
Þegar gestir hafa skráð sig geta þeir einnig bókað fundi og bætt við viðburðum á sitt eigið IceFish-dagatal, sem hámarkar ávinninginn af heimsókninni á IceFish.
Fyrir frekari upplýsingar um hvernig bests er að sýna á IceFish, hafið samband við sales@icefish.is.




