Japanska fyrirtækið Momoi Fishing Net kynnir EcoLoop-verkefnið á IceFish 2026 í bás P30.
EcoLoop verkefnið tengir saman notuð fiskinet, efnaendurvinnslu, ný veiðarfæri og virðiskeðju sjávarafurða til að byggja upp sjálfbærari fiskveiði.
Momoi vinnur með háþróaða hráefnisframleiðslu til að framleiða efnafræðilega endurunnar vörur. Safnað er saman notuðum nælon-fiskinetum og þau unnin með efnafræðilegum aðferðum á sameindastigi, svo að úr verður hágæða nælon, sambærilegt við nýtt efni.
Úr þessum endurunnu efnum framleiðir Momoi síðan EcoLoop-net, sem standast fyllilega þær kröfur sem útgerðir og sjómenn gera um styrkleika og gæði. Prófanir hafa sýnt fram á að styrk- og teygjanleiki þeirra eru sambærileg við hefðbundin net fyrirtækisins.
EcoLoop-netin eru nú þegar notuð í atvinnuveiðum í Japan, sem hefur gert kleift að draga úr úrgangi og losun CO₂, án þess að víkja frá kröfum sem gerðar eru í atvinnuveiðum um áreiðanleika.
Sýn forsvarsmanna Momoi nær lengra en til veiðarfæra. Fyrirtækið hefur einnig þróað verkefni sem kallast Mrico, en það tengir það saman sjómenn, sjávarafurðir, veitingastaði og neytendur í því skyni að auka verðmæti sjálfbærra fiskveiða í allri virðiskeðju sjávarútvegs.
Fulltrúar Momoi munu kynna verkefnið fyrir samfélagi alþjóðlegs sjávarútvegs á IceFish 2026, og kanna um leið nýja samstarfsmöguleika svo að hægt verði að víkka út og styrkja þá spennandi hringrás sem í því felst.
Fyrirtækið Momoi Fishing Net var stofnað árið 1905. Það hefur frá upphafi haft að leiðarljósi að þróast samhliða sjávarútveginum, og beinir sjónum sínum stöðugt meir að heimsmarkaðinum til að styrkja áætlanir sínar um alþjóðlega sókn og stefnumótun. Fyrirtækið hefu nú þegar fært út kvíarnar til Bandaríkjanna, Kanada, Mexíkó, Indónesíu og Filippseyja og starfrækir nú þrjár framleiðslustöðvar í löndum utan Japan í þágu alþjóðlegs sölukerfis þess.
Samtímis því að Momoi Fishing Net leitast við að efla og móta alþjóðlega framtíðarsýn sjávarútvegs, leggur það áfram sitt að mörkum við að hlúa að matvælaauðlindum hafsins með umhverfisvænum lausnum. Þannig endurnýjar fyrirtækið sig sem „Momoi alls heimsins“.
Til að sýna á IceFish, hafið samband við teymið okkar í gegnum netfangið sales@icefish.is.




