
Íslenska tæknifyrirtækið KAPP sérhæfir sig í háþróuðum kæli-, frysti- og vinnslu-
kerfum fyrir sjávarafurðir, kjöt- og alifuglaiðnað.
KAPP framleiðir m.a. OptimICE (CO2) kælikerfið sem hefur verið notað að undanförnu
með afbragðs árangri á Hildi SH-777, dragnótabát sem Hraðfrystihúss Hellissands
gerir út frá Rifi á Snæfellsnesi.
Áhöfn Hildar vinnur í umhverfi þar sem hraði, samhæfing og hirðusöm meðhöndlun
aflans eru lykilþættir. Hefðbundin veiði skipsins snýst einkum um þorsk og ýsu og reiðir
sig á hraða og jafna kælingu aflans til að tryggja ferskleika, útlit og gæði fisksins
allt frá löndun og vinnslu til útflutnings.
Notkun OptimICE (CO2) frá KAPP hefur skipt sköpum í þessu sambandi. Kerfið notar
100% CO2 til kælingar og er hannað til að ná fram hámarks kæliafköstum með
lágmarks umhverfisáhrifum, og lækka rekstrarkostnaðinn um leið.
Áður en OptimICE kom til sögunnar kallaði venjuleg ísun á margfalt fleiri handtök sem
þýddi að kæliferlið var mun hægara um borð í bátnum. Ísmokstur var tímafrekur,
líkamlega erfiður og ekki unnt að stóla á skjóta og jafna ísþekju í kringum fiskinn.
Guðmundur Ragnar Guðmundsson, vélstjóri á Hildi SH-777, segir að einn helsti kostur
kerfisins hafi komið í ljós samstundis og notkun þess hófst:
„Tímasparnaðurinn er stærsti ávinningurinn. Við erum miklu fljótari að kæla fiskinn
niður í rétt undir núll gráður, sem er ákaflega heppilegt hitastig fyrir varðveislu
hráefnisins, ytra sem innra.”
Frá sjónarhóli útgerðar og áhafnar Hildar SH-777 skila þessar umbætur ekki einungis
auðveldara vinnuferli og verðmætari afurð, heldur er það einnig mikið ánægjuefni að
standa í fararbroddi innleiðingar á tækjabúnaði sem boðar framtíðina á þessu
sviði. OptimICE er ískrapakerfi sem kemur í stað fyrir hefðbundinn flöguís. Krapaísinn
er framleiddur úr sjóvatni eða saltvatni bæði um borð og á landi. Krapaísinn
umlykur fiskinn og kælir hann fljótt niður fyrir 0°C og heldur hitastiginu í kringum
-0.5°C. Á meðan veiðiferðinni stendur, við löndun, við flutning til framleiðslu og til
neytanda geymist fiskurinn við sama hitastig án þess að frjósa, sem tryggir
hámarksgæði. Þess vegna rofnar kælikeðjan aldrei. Þessi búnaður KAPP endurspeglar
hvert kælitækni stefnir og tryggir örugga leið til að draga úr umhverfisáhrifum án þess að
fórna afköstum.
Forsvarsmenn KAPP og áhöfn Hildar SH-777 benda á að ótal aðra mikilvæga kosti
samfara notkun kerfisins, þar á meðal aukin vörugæði, minna kolefnisspor, lægri
rekstrarkostnað, samfellu í veiðum og vinnslu án þess að gæði eða vinnuflæði
skerðist, meiri áreiðanleika og auðveldari meðhöndlun með minni líkamlegri áreynslu.
Hönnun kerfisins byggist á staðgóðri þekkingu á þörfum sjávarútvegs og hagnýtum
skilningi á aðstæðum um borð í veiðiskipum.
Guðmundur Ragnar vélstjóri dregur helstu kostina saman á kjarnyrtan hátt:
„Allt gengur hraðar fyrir sig, allt verður auðveldara. Menn borga fyrir gæðin og fá þau.
Flóknara er það ekki,” segir hann.
Til að hitta fulltrúa KAPP og heyra meira um nýjasta tæknibúnað þeirra, heimsækið
sýningarbás B12 á IceFish í september.
Til að sýna á IceFish hafið samband við teymið okkar í gegnum netfangið




