
Nú eru innan við 10 vikur þar til Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin & ráðstefnan 2026 (IceFish) hefst og gestir þegar farnir að panta í stríðum straumum aðgangsmiða sína á vefsíðu IceFish.
IceFish fer fram 22.-24. september nk. og laðar til sín bæði íslenska gesti frá öllum landshornum og gesti frá yfir 60 öðrum þjóðum. Sýningin stendur í þrjá daga og helgar sig sjávarútvegi og fiskeldi og býður upp á fjölbreytt úrval sýnenda úr öllum tengdum geirum.
Í ár verða m.a. veglegir danskir og færeyskir sýningarskálar og norskir sýnendur eru áberandi. Alþjóðlegt vægi IceFish vex stöðugt og í ár mæta sýnendur frá fimmtán ríkjum utan Norðurlandanna, þar á meðal frá Þýskalandi, Spáni, Kanada og Bretlandi.
Gestir geta skoðað hina nýja Miðstöð fiskeldis, sem varpar ljósi á nýjustu framfarir og valkosti í ört vaxandi fiskeldi heimsins og leiðir saman fyrirtæki sem bjóða upp á búnað, háþróaða tækni, gervigreindarlausnir, eldisfóður, heilbrigðis- og velferðarþjónustu fyrir fiska og umhverfistækni.
Nýi Viskubrunnurinn (e. Knowledge Box) býður alla sýningardagana upp á dagskrá með ókeypis vörukynningum, sýnikennslu og fyrirlestrum, og þar fer einnig fram opnunarhátíð IceFish.
Í fyrsta skipti í ár verða haldnar tvær alþjóðlegar ráðstefnur samhliða IceFish, annars vegar eins dags ráðstefnan Aquaculture – Driving Sustainable Growth, og hins vegar tveggja daga ráðstefnan 100% Fish for Profit. Þátttakendur sem tryggja sér sæti á ráðstefnum fá frítt inn á IceFish alla þrjá dagana.
IceFish-sýningin er tvíæringur og hefur fyrir löngu skapað sér sess sem ómissandi vettvangur fyrir Íslendinga til að fagna velgengni sinnar helstu undirstöðu atvinnugreinar. IceFish er hátíð sjávarútvegsins og kjörið tækifæri fyrir land og þjóð til að taka á móti alþjóðlegum gestum til að fræðast, mynda ný tengsl, styrkja gömul og eiga blómleg viðskipti.
Við hlökkum til að bjóða ykkur velkomin á IceFish 2026




