Skoski sjávarklasinn, sem er einn af dyggum stuðningsaðilum IceFish 2026,
hefur látið að sér kveða á sjávarútvegssýningunni í Barcelona undanfarna daga,
og lagt þar áherslu á seiglu, samstarf og framtíð sjávarútvegarsins.
Sjávarklasinn er á meðal tólf skoskra sjávarútvegsfyrirtækja á sýningunni,
en þau sýna undir merkjum Seafood Scotland, og hefur klasinn kynnt fjölbreytni
og gæði í sjávarútvegsframleiðslu þjóðarinnar.
Skoski sjávarklasinn var stofnaður á síðasta ári. Til að fagna eins árs afmæli hans og
innreið á alþjóðavettvang stóð Seafood Scotland fyrir hringborðsumræðum á
sýningunni í samstarfi við Íslenska sjávarklasann, sem er líka einn af
stuðningsaðilum IceFish, og stofnanda hans og stjórnarformann, Þór Sigfússon.
Umræðurnar snerust um ný tækifæri til nýsköpunar, samstarfskosti og virðisauka
í allri framboðskeðju sjávarafurða.
Skoski sjávarklasinn sækir innblástur sinn og helstu fyrirmyndir til Íslenska sjávarklasans,
og hefur unnið kappsamlega að því að leiða saman framleiðendur og vinnslufyrirtæki í
sjávarútvegi, vísindafólk, frumkvöðla og fulltrúa stjórnvalda í Skotlandi. Tilgangurinn er
að nýta til fullnustu þá möguleika sem felast í sjávarútvegi þar í landi, með því að
einbeita sér að samstarfi, nýsköpun og sjálfbærum og umhverfisvænum starfsháttum
í sjávarútvegi.
Donna Fordyce, framkvæmdastjóri Seafood Scotland, er á meðal frummælanda
á IceFish-ráðstefnunni 100% Fish for Profit sem fer fram samhliða sýningunni
dagana 22.-24. september nk. „Við erum sérstaklega stolt af því að geta ekki aðeins
kynnt gæðastaðal og fjölbreytileika greinarinnar, heldur einnig framtíð hennar,“
segir Donna.
Til að slást í hópinn með Skoska sjávarklasanum og öðrum alþjóðlegum
samtökum á sviði sjávarútvegs og fiskeldis er þægilegast að senda teyminu
okkar tölvupóst á netfangið sales@icefish.is




