
IceFish tilkynnir með ánægju að Þróunarstofnun írska sjávarútvegsins er komin í hóp stuðningsaðila, bæði sýningarinnar sjálfrar og ráðstefna hennar.
Þróunarstofnun írska sjávarútvegsins, Irish Seafood Development Agency eða Bord Iascaigh Mhara (BIM) eins og hún nefnist á írsku, er sú ríkissstofnun á Írlandi sem ber ábyrgð á að styðja við sjálfbæran vöxt í þarlendum sjávarútvegi og þróun og eflingu þess atvinnuvegar.
BIM var sett á fót árið 1952 og starfar á öllum sviðum atvinnufiskveiða, fiskeldis, vinnslu sjávarafurða og strandbyggða á Írlandi. Stofnunin útvegar fyrirtækjum í írskum sjávarútvegi tæknilega þekkingu, viðskiptalegan stuðning, þjálfun, áætlanir um nýsköpun og fjármögnunartækifæri.
BIM leggur mikla áherslu á sjálfbærni, færniþróun og samkeppnishæfni á markaði og gegnir lykilhlutverki við að styrkja bláa hagkerfið á Írlandi. Stofnunin ber einnig ábyrgð á nýtingu á auðlindum hafsins sé stýrt á ábyrgan hátt í þágu komandi kynslóða.
Þar sem sjávarútvegurinn er í sífelldri þróun kappkostar BMI að standa í fararbroddi við að knýja áfram nýsköpun, umhverfisvernd og efnahagsvöxt í greininni á Írlandi.
Sendinefnd á vegum BIM mætir á IceFish í september nk. og munu meðlimir hennar sitja ráðstefnuna 100% Fish for Profit og nýta öll fáanleg tækifæri til tengslamyndunar við sýnendur á IceFish.



