
Félag skipstjórnarmanna hefur lengi stutt dyggilega við IceFish, en í ár verður það með viðveru á bás E10 þar sem tekið verður á móti félagsmönnum og öðrum gestum og veittar fjölbreyttar upplýsingar um starfsemina.
Félag skipstjórnarmanna (FS) var stofnað í janúar 2004 með sameiningu Félags íslenskra skipstjórnarmanna, Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Öldunnar, Skipstjóra- og stýrimannafélags Norðlendinga og Skipstjóra og stýrimannafélagsins Sindra á Austfjörðum. FS er stéttarfélag sem gætir hagsmuna félagsmanna og réttinda þeirra, menntunar, öryggis og faglegs starfs.
Meginverkefni FS er að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart atvinnurekendum, stjórnvöldum og öðrum hagsmunaaðilum.
Félagið býður upp á fjölbreytta þjónustu, þar á meðal:
Kjaramál og réttindavernd
Félagið gerir kjarasamninga fyrir félagsmenn á öllum íslenskum skipum, fylgist með framkvæmd kjarasamninga, aðstoðar félagsmenn vegna ágreinings um laun, veikindaleyfi, uppsagnir og önnur réttindamál, og kemur fram fyrir hönd félagsmanna ef ágreiningur verður við útgerðarfyrirtæki eða opinbera aðila.
Verndun faglegra hagsmuna
Félagið stendur vörð um og stuðlar að góðum starfsskilyrðum skipstjórnarmanna, fylgist með breytingum á lögum og reglugerðum er varða sjómennsku, fiskveiðar og siglingar, gefur umsagnir um lög og reglugerðir sem hafa áhrif á starfsgreinina og tekur þátt í samráði við stjórnvöld, stofnanir og atvinnulífið.
Menntun og fagleg réttindi
Með því að viðurkenna mikilvægi starfsþróunar stuðlar félagið að góðri menntun skipstjórnarmanna, fylgist með þróun náms og þróun faglegra réttinda, styður við endurmenntun og símenntun félagsmanna og stendur vörð um fagleg réttindi og hæfniskröfur skipstjórnarmanna.
Öryggi og vinnuverndarmál
Félagið vinnur ötullega að auknu öryggi sjómanna, enda meðvitað um hversu krefjandi og hættulegar aðstæður geta verið í starfsumhverfi þeirra. Félagið fylgist með aðstöðu og starfsskilyrðum um borð í skipum og kemur sjónarmiðum félagsmanna á framfæri varðandi öryggi á sjó og stjórnun fiskveiða.
Málefni sjúkra-og styrktarsjóðs
Mikilvægur þáttur í starfsemi félagsins, samkvæmt samþykktum þess, er rekstur sjúkra- og styrktarsjóðs. Félagið veitir styrki vegna veikinda, endurhæfingar, menntunar og margra annarra verkefna samkvæmt reglum sjóðsins. Félagið styður einnig við velferðarmál félagsmanna og fjölskyldna þeirra með ýmsum hætti.
Íslenskt og alþjóðlegt samstarf
Félagið á margvíslegt samstarf við önnur samtök sjómanna á Íslandi, alþjóðleg samtök sjómanna, sem og stéttarfélög, og fylgir eftir alþjóðlegum samningum sem hafa áhrif á sjómenn.
Upplýsinga- og útgáfustarfsemi
Samskipti eru lykilatriði í starfsemi félagsins. Það miðlar upplýsingum til félagsmanna um kjaramál og réttindi, gefur út fréttabréf, skýrslur og faglegt efni, stuðlar að umræðu um málefni sjávarútvegsins og sjómanna og er aðili að útgáfu tímaritsins Víkings.
Hagsmunagæsla sjávarútvegsins og skipstjórnarmanna
Félagið kemur sjónarmiðum skipstjórnarmanna á framfæri í umræðum um fiskveiðistjórnun, auðlindamál og öryggismál og stendur vörð um sjálfstæði og faglegt hlutverk skipstjórnarmanna.
Félagið heldur sjávarútvegi í forgrunni þjóðmálaumræðunnar með því að leggja áherslu á mikilvægi hans fyrir þjóðarbúið og byggð landsins. Það býður einnig upp á ýmis fríðindi fyrir félagsmenn sína, þar á meðal á það íbúðir og sumarbústaði sem þeim er heimilt að nýta.
Til að hitta fulltrúa Félags skipstjórnarmanna á sýningarbás E10 á IceFish 2026 skaltu kaupa aðgangspassa fyrir gesti NÚNA.




