
Bandaríska tæknifyrirtækið Innovasea mun sýna í nýju fiskeldismiðstöðinni á IceFish 2026, sem haldin verður í Smáranum/Fífunni í Kópavogi dagana 22.–24. september nk. Fyrirtækið býður heildarlausnir fyrir fiskeldi og rannsóknir á vatnalífverum, allt frá upphafi þeirra til enda.
Erik Vis, sérfræðingur hjá þjónustudeild fiskeldis Innovasea, er með meistaragráðu í fiskeldi frá Wageningen-háskóla í Hollandi og MBA-gráðu frá Hagfræðiháskólanum í Noregi (NHH). Hann hefur víðtækan bakgrunn í menntun og starfi, var m.a. framkvæmdastjóri fiskeldisstöðvar á Hawaii og rekstrarstjóri hjá einni stærstu sjókvíareldisstöð í heimi, Open Blue í Panama. Þessi fjölbreytti og langi ferill hefur dýpkað gríðarlega skilning hans og þekkingu á mismunandi aðstæðum og aðferðum sem tíðkast hafa í fiskeldi í gegnum tíðina. Erik hefur óslökkvandi áhuga á sjálfbærri framleiðslu sjávarafurða og starfar ótrauður að framförum og umbótum í fiskeldi.
Langir dagar og ómarkviss sýnataka liðin tíð
Hann segir ótal margt hafa breyst síðan hann byrjaði að vinna við mælingar á lífmassa í fiskeldi í því skyni að bæta rekstur eldisstöðva.
„Ég man vel þegar við fórum sjálf út að mæla eldisfiskinn. Það snerist ekki einvörðungu um að háfa hann upp úr kerjunum eða kvíunum, heldur var heildarferlið langt og strangt. Við þurftum td. að fóðra fiskinn ogt deyfa á meðan mælingarnar stóðu yfir, mæla hann síðan vandlega og helst auðvitað að skila honum lifandi til baka í eldiskvíarnar að öllu þessu loknu. Þetta voru langir dagar. Nokkrir starfsmenn voru önnum kafnir við gagnaöflun í heilan dag, tími sem hefði mátt nýta í önnur mikilvæg verkefni. Síðan þurfti ég að slá gögnin inn handvirkt og greina þau, í þeirri von að vöxturinn hefði verið betri en áætlaður fóðurstuðull (FCR) gerði ráð fyrir.”
Erik segir að sýnatakan hafi einnig verið handahófskennd á þeim árum; stundum hafi menn fengið góð sýni en jafnoft slök, og því aldrei öðlast glögga heildarmynd af allri fiskeldiskvíinni. Þetta gerði langtímaspár og rekstrarákvarðanir erfiðar allt fram að slátrun, en þá var orðið of seint að bregðast við eða lagfæra stefnumörkun um sölu- og markaðsmál.
Tæknin hefur gjörbreytt stöðunni
„Þó þetta hljómi eins og lýsing frá fornöld,” segir Erik Vis, „þá var þetta veruleikinn sem við bjuggum við þar til fyrir ótrúlega stuttu síðan, sérstaklega utan laxeldis. Í dag hefur tæknin gjörbreytt stöðunni. Við höfum farið frá handvirkum mælingum yfir í léttar og meðfærilegar neðansjávarmyndavélar sem sjá um þorra vinnunnar. Einn starfsmaður getur sett upp lífmassamyndavél Innovasea á nokkrum mínútum og byrjað gagnaöflun á augabragði. Gervigreind nýtist síðan við að greina gögnin til fullnustu og birta þau á auðlesnu og skilmerkilegu mælaborði.”
Hann segir að mælingar á lífmassa í fiskeldi hafi af þeim sökum langtum minna álag í för með sér, bæði fyrir fiskinn og starfsfólk, ásamt því að þær skili nú gögnum úr allri kvínni. Þessi tæknilega framþróun skipti í raun sköpum. „Rekstrarstjórar fiskeldisstöðva geta nú tekið ákvarðanir sínar byggðar á nákvæmum gögnum og gripið markvisst inn í ferlið á öllum vaxtarskeiðum fisksins,” segir hann.
Erik nefnir þrjú dæmi um það hvernig nákvæmar lífmassamælingar geta bætt rekstur eldisstöðva til muna:
Í fyrsta lagi: Bætt fóðrun
„Fóðrun var áður ákaflega einföld: Fiskurinn var fóðraður og menn vonuðu það besta,” segir Erik. En þessi nálgun var auðvitað hvorki vísindaleg né skilvirk. Í dag gera rauntímamælingar á stærð og þyngd fisksins stöðvunum kleift að fylgjast betur með eldiskvíunum og reikna nákvæmar út breytileikastuðul (CV). Lækkandi stuðull bendir til árangursríkrar fóðrunar; hækkandi stuðull kallar á aðgerðir til að draga úr fóðursóun og bæta jafnvægi stuðulsins að nýju.
Í öðru lagi: Söfnun erfðafræðilegra upplýsinga
Erik bendir á að lengstaf hafi verið torvelt að fá áreiðanlegar erfðafræðilegar niðurstöður fyrir slátrun. Með nútímatækni við mælingar og gagnasöfnun geti eldisstöðvarnar hins vegar veitt þeim aðilum sem annast erfðarannsóknir raunverulega innsýn í stöðu mála, sem bætir árangur eldisins til framtíðar. Erfðafræðiteymið getur t.d. greint hvort að ein framleiðslulota óx hraðar en önnur eða brást betur við álagi/streituvöldum; upplýsingar sem aðstoða við markvissara val á kynbótastofni til framtíðar.
Í þriðja lagi: Betri ákvarðanir um markaðs- og sölumál
Erik segir að á upphafsárum sínum í greininni hafi honum iðulega fundist ákvarðanir um markaðssetningu og sölumál jaðra við hreinar ágiskanir. „Við skoðuðum tölurnar, reyndum að spá fyrir um vöxtinn og vonuðum að markaðurinn myndi bregðast vel við. En nú er svo komið að með betri gögnum og skýrari sýn á óskir markaðarins getum við bætt söluspárnar og aukið tekjurnar.”
Hann bendir á að í krafti ítarlegri vitneskju um væntanlegar stærðir og fjölda fiska í hverri uppskeru, ásamt fyrirsjáanlegum uppskerutíma, geti framleiðendur nú verið betur undirbúnir og brugðist tímanlega við þörfum markaðarins. Það auðveldar þeim öll samskipti við kaupendur og stýringu á væntingum.
„Þetta snýst ekki lengur einungis um að selja fisk,” segir Erik, „þetta snýst um að selja traust. Færslan frá því að selja það sem er framleitt, yfir í að framleiða það sem er selt, kann að virðast smávægileg við fyrstu sýn, en er í raun grundvallarbreyting. Eldisfyrirtæki geta nú hagað framleiðslu sinni í samræmi við eftirspurn, bætt skipulagið, dregið úr sóun og styrkt tengsl við kaupendur með því að standa ævinlega við gefin fyrirheit.”
Innovasea verður staðsett á sýningarbás H24 í nýju fiskeldismiðstöðinni á IceFish. Til að fá frekari upplýsingar um þátttöku á IceFish er hentugast að senda tölvupóst á netfangið: ttatum@mercatormedia.com




