
Að hljóta verðlaun á Íslensku sjávarútvegsverðlaununum er ávallt sérstakur heiður. En honum fylgdi auka glaðningur fyrir japanska fyrirtækið Momoi Fishing, sem hlaut verðlaun fyrir nýsköpun í sjávarútvegi við hátíðlega athöfn í gærkvöldi þegar Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldisverðlaunin voru veitt.
Eftir að hafa tekið við glæsilegum verðlaunagripnum fögnuðu fulltrúar Momoi, sem komu á IceFish alla leið frá borginni Kobe í Japan, því innilega að fá hamingjuóskir frá sendiherra Japans á Íslandi, Keizo Takewaka, sem var viðstaddur viðburðinn.
Þessi ánægjustund endurtók sig í morgun þegar Takewaka sendiherra skoðaði IceFish-sýninguna og heimsótti að sjálfsögðu bás Momoi.
„Við komum til Íslands til að kynnast landinu og markaðnum betur, þar sem þetta er mjög mikilvægt svæði fyrir okkur, og IceFish hefur verið frábær upplifun í alla staði,“ sagði Kanako Hayase, sölufulltrúi Momoi. „Og það var auðvitað einnig mjög sérstakur heiður og óvænt gleðiefni að hljóta verðlaun á Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldisverðlaununum. “
Verðlaunin fyrir nýsköpun í sjávarútvegi eru veitt fyrir vöru, þjónustu eða tækni sem hefur leitt til verulegra úrbóta í atvinnuveiðum, hvort sem um er að ræða aukna skilvirkni, sjálfbærni, öryggi eða afköst.
Þórður Ægir Óskarsson, fyrrverandi sendiherra Íslands í Japan, afhenti Momoi Fishing verðlaunin í gærkvöldi. Við það tækifæri kom fram að dómnefndin hefði sérstaklega kunnað að meta áherslu Momoi á sjálfbærni og hringrásarhagkerfið. Verkefni fyrirtækisins, Ecoloop, þótti sýna sérstaklega vel hvernig umhverfisvitund og viðskiptalegur árangur geta átt farsæla samleið. Verkefnið snýst um að endurvinna veiðinet með efnafræðilegum aðferðum og gera úr þeim nýjan hágæða veiðibúnað.




