
Ísfell hefur um langt skeið verið leiðandi fyrirtæki á sviði veiðafæraþjónustu og sölu á útgerðarvörum, björgunarvörum, bindivörum, hífilausnum og ýmsum rekstrarvörum. Fyrirtækið býður nú upp á AuroraNet, nýja og háþróaða vörulínu hnútalausra UHMWPE-netpoka, til að mæta vaxandi kröfum fiskeldisiðnaðarins um skilvirkni og öruggari rekstur.
AuroraNet er framleitt úr léttu og slitsterku UHMWPE-efni sem sameinar mikinn styrk og auðvelda meðhöndlun, jafnvel við mjög krefjandi aðstæður. Léttara net dregur úr vinnuálagi, einfaldar daglegan rekstur og lækkar kostnað við meðhöndlunarkostnað, á sama tíma og bætt vatnsflæði skapar betri aðstæður fyrir fiskinn og minnkar álag á botnfestikerfi
Ísfell mun sýna á IceFish 2026, á bás E22, þar sem gestir geta kynnt sér vöruúrval fyrirtækisins og hvernig það kappkostar að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum í starfsemi sinni. Fyrirtækið tilkynnti nýlega að það vilji minnka kolefnisspor sitt bæði á sjó og landi. Til að draga úr úrgangi býður Ísfell upp á þjónustu við söfnun notaðra veiðarfæra frá viðskiptavinum sínum, til að tryggja að þau séu endurunnin á réttan hátt.
Ísfell rekur 7 þjónustustöðvar víðsvegar um Ísland, þær eru á Akureyri, í Hafnarfirði, á Húsavík, á Ólafsfirði, á Patreksfirði, á Sauðárkróki og í Vestmannaeyjum.
Lykilatriði í vöruþróun Ísfells er frábært samstarf við birgja, útgerðir, sjómenn og viðskiptavini til að skilja sem allra best þarfir þeirra og væntingar, og nýta þá þekkingu til bæta framleiðsluvörur sínar og þjónustu.




