
Enn er tími til að skrá sig í einstaka kynningu á lykilþemum, tækifærum og innsýn
í alþjóðlega markaði sem munu móta 100% Fish for Profit-ráðstefnuna á IceFish,
en hún verður haldin dagana 23.–24. september nk.
Vefráðstefnan ber sama nafn,100% Fish for Profit, og fer fram þriðjudaginn 2. júní
2026 frá klukkan 11:00 til 11:45, og spannar víðtæk dagskrá hennar allt frá nýsköpun
og líftækni til sjálfbærni og arðsemi.
Vefráðstefnar býður upp á dýrmætt tækifæri fyrir þátttakendur til að kynna sér hvernig
sjávarútvegurinn er að opnast fyrir nýjum tekjustraumum með því að umbreyta
vannýttum og ónýttum hlutum aflans í verðmætar vörur fyrir aðra geira en
matvælaiðnaðinn.
Vefráðstefnan, sem er styrkt er af Íslenska sjávarklasanum, er undir stjórn Dr.
Alexandru Leeper, framkvæmdastjóra Íslenska sjávarklasans. Valinn hópur
sérfræðinga á þessu sviði tekur þátt, þar á meðal Donna Fordyce, forstjóri Seafood Scotland, og Runar Gjerp Solstad, yfirvísindamaður í sjávarlíftækni hjá Nofima og María Dís Ólafsdóttir, Forstjóri, Nanna Lin.
Skráðu þig HÉR og kynntu þér hvernig samstarf, nýsköpun og fullnýting auðlinda sjávar
getur aukið bæði arðsemi og sjálfbærni í alþjóðlegum sjávarútvegi.




