
Fyrirtækið Marvís ehf, sérhæft í gæða færiböndum, snýr aftur í hóp sýnenda á
IceFish 2026.
Marvís sérhæfir sig í sölu og innflutningi á færiböndum fyrir sjávarútveg og
matvælavinnslu. Fyrirtækið leggur áherslu á innflutning og samsetningu
plastfæribanda frá Intralox, innflutning og sölu raf- og gírdrifsmótara ásamt
varahlutum og íhlutum. Fyrirtækið hefur alla tíð lagt áherslu á að flytja inn og selja
vörur í hæsta gæðaflokki fyrir íslenskan markað.
Einn helsti samstarfsaðili Marvís, Intralox, er leiðandi fyrirtæki á þessu sviði en það
fékk einkaleyfi á fyrsta plastfæribandinu árið 1970. Færibandið var hannað með
sjávarútveginn í huga, auðvelt í þrifum og með góðu drifkerfi. Þetta færiband sló
í gegn og í dag býður Intralox upp á fjölbreyttasta úrval af plastfæriböndum sem
finna má í heiminum. Þau henta fyrir flest þau ferli þar sem færibönd eru notuð og
uppfylla ströngustu gæðakröfur í matvælaiðnaði og víðar.
Intralox-færiböndin eru hönnuð til að þola mikið álag og erfiðar aðstæður. Þau
eru saltþolin, ryðga ekki, taka ekki í sig mikla lykt og þurfa lítið viðhald. Þau hafa
einnig gæðavottun frá landbúnaðarstofnun Bandaríkjanna, USDA.
Gestir IceFish eru hvattir til að heimsækja F70, sýningarbás Marvís.




