
Gestir og sýnendur á IceFish geta enn tekið þátt í B2B-Fyrirtækjastefnumótunum, ókeypis fundum sem bjóða upp á tækifæri til að hitta mögulega viðskiptafélaga á markvissum einkafundum.
B2B-Fyrirtækjastefnumótin skapa tækifæri til að mynda ný tengsl þvert á landamæri og tengjast fyrirtækjum, einstaklingum og samtökum innan sjávarútvegs og fiskeldis. Fundirnir eru skipulagðir af Enterprise Europe Network á Íslandi, undir stjórn Rannís, Rannsóknamiðstöðvar Íslands.
Meðal þátttakenda eru fyrirtæki, klasar, lykilfólk í ákvarðanatöku og rannsakendur úr ýmsum greinum sjávarútvegs og fiskeldis, svo sem veiðum, vinnslu, flutningum, markaðssetningu, dreifingu og öðrum tengdum sviðum virðiskeðjunnar.
Þátttakendur geta bókað markvissa 20 mínútna fundi fyrirfram. Á B2B-Fyrirtækjastefnumótunum á seinustu IceFish voru haldnir 98 árangursríkir fundir.
Þátttaka er ókeypis fyrir þá sem mæta á IceFish, en í dag er síðasti dagurinn til að skrá sig.
Skráðu þig í gegnum hlekkinn hér að neðan
Heimasíða | B2B-fundir á IceFish 2026




