Heiðursverðlaun fyrir ævistarf veitt á IceFish 2026
23. september 2026Eftir Press PR
Deila þessari grein
Heiðursverðlaunin fyrir ævistarf, sem eru hluti af Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldisverðlaununum, voru í dag veitt þeim Erni Pálssyni og Arthuri Bogasyni á IceFish-sýningunni. Verðlaunin hljóta þeir félagar til viðurkenningar á fjögurra áratuga óbilandi starfi í þágu íslensks smábátaútvegs.
Verðlaunin eru veitt í samstarfi við Hampiðjuna og ætluð einstaklingum sem hafa lagt mikilvægan skerf til íslensks sjávarútvegs og mótað greinina eins og hún er í dag.
Hjörtur Erlendsson forstjóri Hampiðjunnar afhenti Erni verðlaunin í dag á IceFish. Arthur Bogason gat ekki verið viðstaddur afhendinguna, en þess í stað veitti Kjartan Sveinsson, sem tók við af honum sem formaður Landssambands smábátaeigenda fyrr á þessu ári, þeim viðtöku fyrir hönd Arthurs.
Verðskulduð viðurkenning frá greininni sem markar endalok merkilegs tímabils.