
Skoska fyrirtækið Gael Force var að tryggja sér sýningarrými á IceFish 2026, og bætist þar með í sístækkandi hóp framleiðslufyrirtækja fyrir fiskeldi sem taka þátt í sýningunni í september nk.
Gael Force-samstæðan býr yfir ríflega fjörutíu ára reynslu og þekkingu sem þjónustuaðili og framleiðandi áreiðanlegs búnaðar og tækjakosts fyrir fiskeldi og veiðar.
Gael Force kynnti nýlega til sögunnar „SeaQurePen Ultra“, sem er einstaklega endingargóð sjókví með galvaniseruðum stálfestingum. Kvíin er afar sterkbyggð og harðgerð, og hentar fullkomlega fyrir hámarks afköst við krefjandi aðstæður þar sem glímt er við náttúruöflin í öllu sínu veldi. Kvíarnar fást í 450 mm, 500 mm og 560 mm flotpípustærðum.
Helstu eiginleikar SeaQurePen Ultra eru meðal annars ummálsstærðir frá 120 m upp í 200 m og há-galvaniseraðar stálfestingar sem bjóða upp á styrk, seiglu og stöðugleika. Kvíarnar eru sérstaklega hannaðar til að vera sterkar og endingargóðar við erfiðar aðstæður þar sem kraftar náttúrunnar eru óblíðir og miklar kröfur eru gerðar til alls búnaðar. Tengikerfið er hannað þannig að það dreifi á sem bestan hátt álagi á umgjörð kvíarinnar.
SeaQurePen Ultra-kvíarnar þola einnig þung ölduhögg og sterka strauma, en eru samt sveigjanlegar í miklum öldugangi.
Kvíarnar, festingar þeirra og einstakir hlutar, hafa komið afar vel út úr endingar-og burðarþolsprófunum FEA (Finite Element Analysis) sem gerðar hafa verið á þeim.
Fyrirtækið býður upp á heildstæða verkfræðilega greiningu og hönnun hermilíkana fyrir uppsetningu á fullbúnum kvíum, netum og festingum. Nýju kvíarnar bjóða upp á hagkvæmar hönnunarlausnir fyrir einingar með stórt ummál.
SeaQurePen Ultra býður einnig upp á valfrjálsan netspilabúnað sem er „plug and play“, þ.e. klár til notkunar, sem gerir óþarfa aðkomu rafvirkja við uppsetningu hans og dregur þannig úr aukakostnaði.
Til að fá frekari upplýsingar um hvernig best er fyrir þig að sýna á IceFish 2026, hafðu samband við ttattum@mercatormedia.com.




