
Norska hugbúnaðarfyrirtækið Catchwise nýtir sér gervihnattargögn og gervigreind til að hjálpa útgerðum og skipstjórum við fiskileit. Catchwise hefur vaxið hratt í norskum sjávarútvegi og er staðan nú sú að 30% norskra skipstjóra notfæra sér þjónustu fyrirtækisins. Á sumum sviðum sjávarútvegs, þar á meðal hjá útgerðum stærri skipa, línubáta, togara og rækju- og humarbáta, er hlutfallið mun hærra.
Forsvarsmenn Catchwise eru meðvitaðir um að þessi góði árangur er engin tilviljun. Þvert á móti er hann afrakstur náins samstarfs með skipstjórum og gaumgæfilegrar athugunar á vandamálum sem þeir glíma við á hafi úti, til að hægt væri að þróa og aðlaga þjónustu fyrirtækisins að þörfum þeirra til hins ítrasta.
Fyrirtækið veit einnig að ef viðskiptavinir eru ánægðir láta þeir það berast áfram, og býður því upp á 14 daga ókeypis prufuáskrift á þjónustu sinni til að skipstjórar geti kynnst henni af eigin reynslu án skuldbindingar.
Tækniþjónusta Catchwise eru nú notuð af útgerðum og skipstjórum í sjö löndum heimsins. Hún sameinar fyrsta flokks gervihnattagögn, sjókort og upplýsingar um sjávarhita, hafstrauma, hafdýpi, sjávarfallamynstur, söguleg gögn, skipaferðir o.fl., og vinnur úr öllum þeim fróðleik á gríðarhraða og með ótrúlegri nákvæmni, í því skyni að spá fyrir um líklegustu veiðisvæðin.
Markmiðið er að veita skipstjórum traustari grundvöll fyrir ákvarðanatöku með því að sýna þeim hvað er á seyði á umræddum tíma, hvað hefur gefist vel áður og hvort búast megi við að áþekkar aðstæður skapist í þetta tiltekna skipti.
Flestir nýir notendur skipta út sjálfvirka auðkenniskerfinu (AIS) sem þeir hafa notað fyrir Catchwise innan 2–3 vikna, eða um leið og búið er að staðfesta sambærileika hugbúnaðarins við AIS.
Fyrirtækið er stöðugt að auka við tækniþjónustu sína, efla hana, breyta og bæta í samræmi við ábendingar, viðbrögð og reynslu þeirra sem nota hana dag eftir dag úti á miðunum. Þessi víxlverkun á milli vöruþróunar og notenda hefur gert Catchwise kleift að vera alltaf í fararbroddi og hagkvæmur og ákjósanlegur valkostur á kröfuhörðum markaði, markaði sem kærir sig ekki um aðferðir sem líta vel út á pappír en bregðast síðan þegar á hólminn er komið.
„Við höfum lagt allt í sölurnar til að þróa vöru sem skipstjórar vilja virkilega nota og gagnast þeim til hlítar. Okkur hefur tekist það vonum framar með því að hlusta vandlega, bregðast hratt við og gera án afláts úrbætur í samræmi við svörun frá notendum búnaðarins,” segir Ludvig Løddesøl, stofnandi og fjármálastjóri Catchwise.
Fyrirtækið hefur að undanförnu þróað hugbúnaðinn í þeim tilgangi að aðstoða skipstjóra við að hagnýta sér til fullnustu þeirra eigin aflasögu í gegnum tíðina. Með því að tengja upplýsingar um fyrri aflasögu saman við þætti á borð við hafstrauma, hitastig og veðurfar, geta skipstjórar lært af eigin reynslu og nýtt sér þá þekkingu við veiðarnar. Þessi viðbót við búnaðinn veitir skipstjórum skjótari aðgang að viðeigandi upplýsingum og geta fyrir vikið verið öruggari um hvert sigla skal næst.
Komdu og heimsóttu Catchwise á sýningarbás E54 á IceFish í september.
Til að bóka sýningarbás er best að hafa samband í gegnum netfangið sales@icefish.is




