Sensa, leiðandi upplýsingatæknifyrirtæki, verður á IceFish í ár, á bás G21.
Fyrirtækið hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að nýta tækni til að styrkja rekstur sinn, auka öryggi og ná markmiðum sínum.
Sensa vinnur náið með viðskiptavinum sínum og styður þá við val á lausnum, hvort sem
um er að ræða innviði á Íslandi eða í skýjum.
Grunnur fyrirtækisins er byggður á öryggi og áreiðanlegum rekstri og með ráðgjöf þess, þjónustu og sérþekkingu gerir það stafrænar umbætur og umbreytingar mögulegar. Þetta skapar sveigjanleika og framþróun sem þarf til að ná árangri í síbreytilegu rekstrarumhverfi.
Sensa hefur frá upphafi staðið verið í fararbroddi í í þróun netkerfa og þjónustuframboð
þess nær yfir netkerfi, hýsingu, rekstrarþjónustu, forritun á hugbúnaðarlausnum, netöryggi og tæknilegri ráðgjöf – allt sérsniðið að þörfum hvers og eins.
„Það sem skiptir okkur mestu máli e
r að byggja upp traust og varanleg tengsl. Okkur er ekki sama,” segir Guðmundur Stefán Björnsson, forstjóri Sensa. „Við hlustum, leggjum okkur fram og vinnum með fagmennsku og einlægni að því að finna lausnir sem henta. Með
öflugu teymi sérfræðinga, sterku baklandi móðurfélagsins og öflugum tengslum við fjölda birgja höfum við burði til að mæta flóknum áskorunum viðskiptavina okkar.”
Til að ganga til liðs við Sensa og önnur öflug fyrirtæki sem sýna á Icefish, hafið samband við teymið okkar í gegnum netfangið sales@icefish.is.




