
Norska fyrirtækið Brimer, sem er leiðandi á Evrópumarkaði í framleiðslu búnaðar úr glertrefjastyrktu plasti (GRP), hefur að undanförnu tryggt sér fjölmarga nýja verksamninga fyrir landeldisstöðvar.
Samningarnir efla verulega stöðu fyrirtækisins sem lykilbirgis á sviði búnaðar úr glertrefjastyrktum plastefnum í allri virðiskeðju fiskeldis í Evrópu.
Samningarnir ná til margvíslegra verkefna og mismunandi framleiðslustiga í landeldisstöðvum vítt og breitt um Noreg, sem endurspeglar vaxandi eftirspurn í fiskeldi nútímans eftir endingargóðum búnaði úr slíkum plastefnum.
Á meðal umræddra samninga má nefna verkefni fyrir þorskeldisstöð fyrirtækisins Ode/Lumarine, verkefni fyrir lúðueldisstöðvar fyrirtækjanna Sande Seafarm Production og Nordic Halibut, og einnig verkefni fyrir tvær laxeldisstöðvar sem ekki er heimilt að tilgreina að sinni.
Samningarnir bera vitni um blómlegasta tímabil Brimer innan fiskeldisgeirans til þessa. Fyrirtækið mun m.a. framleiða fjölbreytt úrval sérsniðinna lausna fyrir landeldi, svo sem eldisker, lokuð ker, göngubrúakerfi, lífsíur, söfnunardælur, CO₂-hreinsibúnað, affallsker, miðlæg niðurföll og ýmsan annan sérhæfðan búnað.
Fredrik Ryslett hefur seinustu árin leitt það svið Brimer sem einbeitir sér að framleiðslu fyrir fiskeldi. Hann var nýverið ráðinn í starf aðstoðarframkvæmdastjóra sölu- og markaðsmála fyrirtækisins.
„Markaðurinn fyrir fiskeldi er ákaflega sprækur um þessar mundir og sífellt fleiri framleiðendur fjárfesta í nútímalegum eldisstöðvum sem þurfa að standast ýtrustu kröfur um rekstraröryggi, langan endingartíma og lágmarks viðhaldsþörf,” segir Fredrik.
„Verkefni okkar spanna nú þorskeldisstöðvar, lúðueldisstöðvar og laxeldisstöðvar, og ná yfir öll framleiðslustig frá klakfiski, seiðaeldi og stórseiðaeldi til eldis fullvaxta fiska. Á sama tíma sjáum við aukna eftirspurn eftir bæði landeldisstöðvum og lokuðum lausnum í lagareldi. Þetta sýnir hvernig markaðurinn er að þróast og hversu víða er hægt að nota lausnir úr glertrefjastyrktu plasti.”
Fredrik segir að samnefnari þeirra verkefna sem Brimer vinnur nú að sé þörf fiskeldisgeirans fyrir meiri stjórn á ytri aðstæðum starfseminnar, þar á meðal leiðir sem bæta smitvarnir og draga úr losun náttúruspillandi efna og neikvæðum umhverfisáhrifum.
Framleiðsluvörur Brimer leggja slíkum markmiðum lið vegna góðrar endingar þeirra, lágmarks tæringar og lítillar viðhaldskröfu. Forsmíðaðar einingar fyrirtækisins lækka einnig byggingarkostnað eldisstöðva, stytta uppsetningartíma þeirra og gera nýjum stöðvum kleift að hefja framleiðslu fyrr en ella.
„Við teljum þennan markað búa yfir miklum möguleikum til fyrirsjáanlegrar framtíðar. Eftirspurn eftir öflugum lausnum úr glertrefjastyrktum plastefnum eykst stöðugt og við sjáum ótal markaðstækifæri bæði í Noregi og á alþjóðavísu,” segir Fredrik.
Brimer verður staðsett á sýningarbás F60 á IceFish. Til að sýna á IceFish hafið samband við teymið okkar í gegnum netfangið sales@icefish.is




