
Norska skipasmíðastöðin Norse Shipyard hefur staðfest að það muni sýna á nýjan leik á IceFish 2026, en fyrirtækið sýndi þar í fyrsta skipti árið 2024 og var ákaflega ánægt með bæði umgjörð og framkvæmd sýningarinnar og árangurinn af þátttökunni. Gestir munu meira að segja geta heimsótt fulltrúa fyrirtækisins á sama bás og seinast, E41.
Fyrirtækið býður upp á fjölbreytt úrval af nýsmíði og viðgerðarþjónustu í skipasmíðastöðvum þess í Tyrklandi. Það er þekkt fyrir verkfræðivinnu og skipahönnun í hæsta gæðaflokki, ásamt öflugri framleiðslugetu. Norse Shipyard hefur tekið að sér mörg nýstárleg verkefni frá því að það var sett á stofn, þar á meðal smíði fyrstu vetnisknúnu ferju í heimi. Fyrirtækið hefur einnig unnið margvísleg áhugaverð og mikilsverð verkefni með góðum árangri í samstarfi við ýmsar aðrar skipasmíðastöðvar í Noregi og Tyrklandi.
Frá því að Norse Skipyard sýndi seinast á Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni, IceFish, hefur fyritækið bætt flotkví við mannvirki sín í Tyrklandi, viðbót sem gefur kost á að bjóða upp á öflugri og sveigjanlegri þjónustu á sviði viðhalds og viðgerða, auk því að auka rekstrarhagkvæmnina til muna. Fyrirtækið hefur nýlega hafið smíði á tveimur fóðurprömmum fyrir fiskeldisstöðvar, nýsmíði sem kallast annars vegar Fluctus Fish Feed Barge 5035 og hins vegar NB33: Fluctus Fish Feed Barge 1001.
Norse Shipyard hefur seinustu misseri lagt kapp á að ná metnaðarfullum markmiðum sínum varðandi sjálfbærni og orkunýtingu, og gert það m.a. með því að framleiða sjálft rafmagn með umhverfisvænum hætti, alls 545.330 kWh árlega. Með þeim hætti hefur fyrirtækinu tekist að koma í veg fyrir 337.995,5 kg af losun CO₂ sem samsvarar því magni kolefnislosunar sem þyrfti um 6.400 tré til að að jafna.
Fyrir frekari upplýsingar um hvernig best er að sýna á IceFish, hafið samband við sales@icefish.is.




