
Fyrirtækið NorWorx, sem sýnir á IceFish 2026, var valið sem sérstakur tæknilegur samstarfsaðili eldisfiskframleiðandans First Water við frágang lykilþátta í nýrri og framsækinni fiskeldisstöð sem rís um þessar mundir í Þorlákshöfn.
Samstarfið lýtur að tækniþjónustu við svokallaða „fiskeldiseyju”, en um er að ræða búnað sem þykir setja ný viðmið í sjálfbæru fiskeldi. Tilgangur verkefnisins er að samþætta ábyrga matvælaframleiðslu og hátækni, skilvirka nýtingu vatns og umhverfisvæna hönnun framleiðslukerfa.
Strangar tæknikröfur eru gerðar til allra verkþátta stöðvarinnar. Þar á meðal er þörf á hágæða íhlutum í véla-og tækjabúnað sem verður að geta starfað hnökralaust við erfiðar aðstæður í umhverfi sjávar, án tafa eða bilana. Íhlutirnir þurfa einnig að geta tryggt fulla samhæfni á milli margra tengdra kerfa.
NorWorx útvegaði First Water fjölmarga sérhannaða íhluti í hæsta gæðaflokki, tækjakostur sem er þróaður með langtíma afköst í huga, skilvirkni og stöðugleika kerfa.
Þar á meðal var vatnshreinsibúnaður, nákvæmnisíhlutir sem styðja við síun, flæðistýringu og örugga hringrás vatns innan fiskeldisstöðvarinnar, auk flutnings- og færslutækni, ásamt áreiðanlegum dælu- og flæðilausnum sem tryggja skilvirkt rennsli vatns milli mismunandi svæða kerfisins.
NorWorx mætti sumum tæknilegum áskorunum verksins með því að aðlaga nauðsynlega íhluti eftir þörfum í hverju tilviki fyrir sig. Meðal annars þurfti að auka seiglu og líftíma íhluta í köldum og söltum sjó, og gera þá þannig úr garði að þeir stæðust kröfur um nákvæmni í stýrðri meðhöndlun vatns.
Tímarammi verkskila var þröngur og þurfti fyrirtækið að samræma afhendingu íhlutanna til að halda skilafrestinn, á sama tíma og framleiðslan var að kljást við alþjóðlegar takmarkanir á framboði hráefnis. Með því að grípa til sveigjanlegra innkaupa tókst að yfirstíga farsællega vandamál samfara þessum takmörkunum.
Hönnunar- og framleiðsluteymi NorWorx leystu allar þær áskoranir sem þau mættu með samblandi af tæknilegri sérþekkingu, traustum tengslum við birgja og vandlega skipulagðri vörustjórnun. Þeim tókst fyrir vikið að afhenda alla íhluti í hæsta gæðaflokki á tilsettum tíma, í samræmi við ýtrustu skilyrði First Water.
Framlag NorWorx er afar mikilvægt því markmiði stöðvarinnar að byggja upp nútímalegt og sjálfbært fiskeldiskerfi sem getur starfað til langs tíma á umhverfislega ábyrgan hátt.
Til að hitta fulltrúa NorWorx á IceFish í september 2026 má hafa samband við ttattum@mercatormedia.com




