
Nýliðið ár var annasamt fyrir sænska fyrirtækinu NP Innovation, fyrirtæki sem er stöðugt að færa út kvíarnar, breikka vöruúrval sitt fyrir fiskeldi og eflast. Í fyrra kynnti það m.a. til sögunnar BioGuard SWIFT, byltingarkennda tæknilausn fyrir vatnshreinsun.
NP Innovation keypti íslenska fyrirtækið Aqua.is haustið 2024, og eftir farsæla samþættingu og endurskipulagningu á starfseminni á seinasta ári er það nú rekið undir heitinu NP Innovation Iceland. Auk Svíþjóðar og Íslands er fyrirtækið með útibú í Noregi.
Mikilvægustu tímamótin árið 2025 fólust þó í að HAF Investment og Alfa Framtak urðu meirihlutaeigandur í NP Innovation. Með nýju eignarhaldi hefur fyrirtækið öðlast aukinn styrk, víðtækari þekkingu og reynslu; allt saman þættir sem ryðja brautina fyrir áframhaldandi nýsköpun og sjálfbæran vöxt innan fiskeldisgeirans
NP Innovation ákvað einnig að lokasamsetning á framleiðsluvörum þess væri best komin innan eigin veggja fyrirtækisins, og til að gera það kleift var reksturinn í Svíþjóð fluttur í stærra húsnæði í árslok. Með því að færa lokasamsetninguna nær öðrum hlutum framleiðslunnar er hægt að halda betur utan um gæðastjórnun á henni, stytta afhendingartíma og auka gæði og skilvirkni í þágu viðskiptavina.
„Við erum staðráðin í að halda áfram á þeirri vegferð sem nú er farin af stað,” segir Michael Bäärnhielm, forstjóri NP Innovation. „Markmið okkar er að vera traustasti og framsæknasti birgirinn í fiskeldisgeiranum, og við kappkostum í hvívetna að tryggja bestu mögulegu skilyrði fyrir heilbrigði eldisfiska um heim allan. Það eru gríðarlega áhugaverðir hlutir að gerast hjá NP Innovation þessa dagana, og ég vil nota tækifærið og bjóða öllum að slást í för með okkur og taka þátt í þessari spennandi vegferð.“
NP Innovation mun sýna í bás H25 í hinni glænýju Fiskeldismiðstöð IceFish á sýningunni í september nk.
Til að fá frekari upplýsingar um hvernig best er að sýna í nýju Fiskeldismiðstöðinni, sem og upplýsingar um önnur spennandi sýningartækifæri í boði á IceFish 2026, er einfaldast að senda okkur tölvupóst á netfangið: ttattum@mercatormedia.com.




