
Optimar, sýnandi á IceFish 2026, styrkir alþjóðlegt viðskiptasvið sitt.
Optimar hefur ráðið Pétur Jakob Pétursson sem framkvæmdastjóra alþjóðlega
viðskipta (CCO) og Lárus Gunnarsson sem framkvæmdastjóra aþjóðlegrar
viðskiptastarfsemi (DCO). Á sama tíma tekur Jannicke Valderhaug við hlutverki
markaðsstjóra á alþjóðavísu (CMO).
Optimar greinir aukna eftirspurn eftir samþættum lausnum sem sameina skilvirka
tækni og áherslu á velferð fisksins. Ráðningarnar eru mikilvægt skref í áframhald-
andi vaxtarferli Optimar og styrkja metnaðarfull áform þess um að tryggja sér stöðu
sem fyrsti valkostur alþjóðlegra sjávarútvegsfyrirtækja í leit að heildarlausnum.
Pétur Jakob mun í starfi sínu bera ábyrgð á alþjóðlegri viðskiptastefnu Optimar,
markaðssókn og öflun nýrra tekjustofna. Pétur Jakob var ráðinn sölustjóri Optimar
á Asíumarkaði í september 2024, en hann á að baki ríflega 20 ára reynslu af
sjávarútvegi, vinnslu sjávarafurða, fiskeldistækni og alþjóðlegum fyrirtækjamarkaði.
„Sjávarútvegur er í örri þróun og viðskiptavinir okkar vilja samstarfsaðila sem skilja
heildarmyndina. Með því að styrkja skipulagið á alþjóðlegri viðskiptastarfsemi okkar
erum við betur í stakk búin til að útvega viðskiptavinum okkar samþættar lausnir í allri
virðiskeðjunni,“ segir Pétur Jakob.
Lárus mun í starfi sínu bera ábyrgð á að þróa og styrkja viðskiptaferla Optimar á
öllum aþjóðlegum mörkuðum og sölusviðum.
„Optimar hefur einstaka stöðu í greininni, þar sem fyrirtækið sameinar djúpstæða
sérþekkingu á vinnslu í sjávarútvegi og breitt úrval tækni og þjónustu. Ég hlakka til
að þróa sveigjanlegar söluaðferðir og hagkvæma og flækjulausa viðskiptaferla, með
það markmið að leiðarljósi að auka vöxt okkar á heimsvísu,” segir Lárus.
Lárus kemur til Optimar frá Símanum, þar sem hann starfaði síðast sem
framkvæmdastjóri viðskipta-og vöruþróunar.
Optimar hefur einnig ráðið Jannicke Valderhaug sem markaðsstjóra á heimsvísu til
að styrkja vörumerkið alþjóðlega. Jennicke mun í því starfi leiða áframhaldandi þróun
Optimar vörumerkisins og styrkja alþjóðlegt markaðsstarf fyrirtækisins.
„Við erum að byggja upp sterkari fyrirtæki á alþjóðavísu til að styðja við langtíma
vaxtarmarkmið okkar,” segir Siggi Ólason, framkvæmdastjóri Optimar. „Með Pétri,
Lárusi og Jannicke í þessum lykilstöðum sameinum við sérþekkingu í greininni,
viðskiptalega ágæti og vörumerkjaþróun til að skapa enn meira virði fyrir viðskiptavini
okkar um heim allan.”
Optimar er leiðandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á sjálfvirkum fiskvinnslukerfum
til notkunar um borð í fiskiskipum, á landi og í fiskeldi. Allt frá því að fyrirtækið var
stofnað árið 1978 hefur það þróað kerfi sem auka hagræðingu í rekstri og styðja við
skilvirkari og sjálfbærari sjávarútveg. Optimar leggur áherslu á að bjóða viðskiptavinum
sínum upp á heildarlausnir í allri virðiskeðjunni, allt frá frá skipulagningu og hönnun til
uppsetningar og þjónustu. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Valderøya í Noregi en
fyrirtækið þjónar viðskiptavinum um allan heim.
Optimar mun sýna ásamt Slippinum og Brunvoll á sýningarbás C52 á IceFish.




