Faxaflóahafnir hafa í yfir tuttugu ár rekið hafnir og hafnarsvæði í Reykjavík
og Borgarbyggð og á Akranesi og Grundatanga. Fyrirtækið rekur öruggar,
grænar og skilvirkar hafnir sem tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði
Íslands við umheiminn og miðin
Hafnir leika augljóslega mikilvægt hlutverki í sjávarútveg á Íslandi, og því
aðeins rökrétt að Faxaflóahafnir hafi ákveðið að gerast einn af stuðningsaðilum
IceFish-sýningarinnar. Fyrirtækið er dýrmæt og velkomin viðbót við þann öfluga
hóp.
Rekstur Faxaflóahafna standa á traustum grunni sem byggir á 100 ára sögu
hafnastjórnunar og eru lykilþátttakendur í þróun, umbótum og rekstri mikilvægra
innviða í samgöngukerfinu og efnahagslífi Íslands.
Faxaflóahafnir sf. voru stofnaðar síðla árs 2004 og og tók við rekstri hafna og
hafnarsvæða á Akranesi, Borgarbyggð, Grundartanga og Reykjavík í upphafi
árs 2005. Flestar þeirra geta tekið á móti stórskipum, fyrir utan hafnirnar í
Borgarnesi sem bjóða upp á aðstöðu fyrir minni báta og staðbundna þjónustu.
Í Reykjavík heyra Sundahöfn og gamla Reykjavíkurhöfnin undir stjórn Faxaflóahafna.
Í þeirri fyrrverandi eru afgreiddir gámaflutningar, kornflutningar, birgðaskip, ferjur
og skemmtiferðaskip, en í þeirri síðarnefndu eru þjónustuð veiðiskip, flutnings-
prammar, rannsóknarskip, ferðaþjónusta og skipaviðhald. Þessi tvö hafnarsvæði
hafa samtals yfir fjóra kílómetra af bryggjum.
Umráðasvæði Faxaflóahafna við Grundartangi hefur verið þróað sem lykilmiðstöð
iðnaðar-og viðskiptaflutninga og skipaflutninga, en höfnin á Akranesi styður við
útgerð og iðnað í bæjarfélaginu og nágrenni.




