Ofangreind orð eru kjarninn í rekstrarheimspeki spænska fyrirtækisins Ibercisa Deck Machinery, sem sýnir á bás F44 á IceFish 2026.
Ibercisa Deck Machinery var stofnað árið 1969 í Vigo á Spáni og hefur á þeim tæpu sex áratugum sem eru liðin síðan þá skipað sér í forystusveit fyrirtækja á sínu sviði. Í upphafi einbeitti það sér að smíði nótaspila, kraftblokka, spila fyrir línuveiðar, hjáparvindna, kapstanvindna, snældublokka og fiskidæla til að meðhöndla aflann, en hefur eflst og
stækkað allar götur síðan. Nú býður fyrirtækið nú upp á fjölbreytt úrval framleiðsluvara
fyrir veiðiskip og útgerðir dráttarbáta, kaupskipa, hjálparskipa og rannsóknarskipa.
Til að geta hannað og framleitt áreiðanlegan og traustan hágæða vélbúnað þurfa að vera
til staðar tæknilegar auðlindir sem grundvalla framúrskarandi framleiðsluferli frá upphafi til enda. Forsvarsmenn Ibercisa Deck Machinery gera sér fulla grein fyrir nauðsyn þessa þáttar
í rekstrinum, og kappkosta að viðhalda og bæta stöðugt þann tækniauð sem veitir fyrirtækin samkeppnisforskot með markvissum fjárfestingum í uppfærðri tækni og innviðum. Fyrirtækið hefur nú yfir að ráða rúmlega 9 þúsund fermetra rými fyrir framleiðsluferlið, þar á meðal svæði fyrir viðgerðir, skrúfuhreinsanir og málun í slipp.
Á meðal véla fyrirtækisins má nefna Anayak-fræsivél með hreyfanlegum og snúanlegum palli, sem getur borið búnað allt að 1,3 tonn að þyngd og 4m x 3m að umfangi, rennibekk með 4 m fjarlægð milli odda og 1.500 mm hámarks vinnsluþvermál, blástursofn, málningarklefa og krana sem getur lyft 80 tonnum.
Til að slást í hópinn með Ibercisa og öðrum öflugum sýnendum á IceFish 2026, hafið samband við teymið okkar í gegnum netfangið sales@icefish.is.




