The Workboat Association, alþjóðleg samtök með höfuðstöðvar í Bretlandi,
eru einn af stuðningsaðilum IceFish 2026. Samtökin eru í nánum tengslum við
fiskeldi í heiminum, enda eru innan þeirra vébanda aðilar sem standa fyrir yfir
400 sjóför sem notuð eru í þeirri atvinnugrein.
The Workboat Association eru samtök um viðskipti, fagþekkingu og öryggisstaðla
fyrir allan skipakost sem notaður er í atvinnuskyni. Þau hafa starfað í yfir þrjá
áratugi og innan raða þeirra eru um 300 aðildarfélög í Bretlandi, Evrópu og víðar í
heiminum. Í þeim hópi eru m.a. eigendur, rekstraraðilar, hagsmunaaðilar og
samtök fagfólks, sem standa fyrir um 2000 skip í rekstri og um 8000 starfsmenn.
Samtökin gegna mikilvægu hlutverki í tengslum við helstu eftirlits- og fagstofnanir
í sjávarútvegi og siglingum víðs vegar í heiminum.
Frá því stofnun sinni árið 1994 hafa The Workboat Association beitt sér fyrir því að
bæta staðla um öryggi, tækni og starfsþjálfun á skipum, ásamt því að hafa verið
samstarfs- og hagsmunavettvangur fyrir aðildarfélaga sína og siglingaiðnaðinn.
Samtökin bjóða einnig upp á viðurkennd þjálfunar- og vottunartækifæri.
„The Workboat Association er stolt af því að styðja Ice Fish, sýningu sem alltaf
sameinar allt það besta úr sjávarútvegi og fiskeldi í Norður-Atlantshafinu,” segir
Kerrie Forster framkvæmdastjóri samtakanna. „Viðburður á borð við IceFish styrkir
tengslin milli rekstraraðila, skipasmíðastöðva, búnaðarframleiðenda og eftirlitsaðila,
hjálpar okkar fagi að miðla nýsköpun, bæta öryggi og byggja upp sjálfbærari framtíð
fyrir rekstur lítilla atvinnu- og fiskiskipa. Ice Fish gegnir líka mikilvægu hlutverki við að
efla framsýni og samstarf í greininni. Innan okkar raða eru m.a. viðskiptasamtök
sem standa fyrir rúmlega 400 báta og skip sem notuð eru í fiskeldi, og það er óhætt
að segja að The Workboat Association eru stoltir stuðningsaðilar IceFish 2026.”




