Set ehf. hefur áratuga þekkingu og reynslu á sínu sérsviði og býður m.a. upp á fjölbreyttar lausnir fyrir fiskeldi.
Fyrirtækið hefur aukið verulega starfsemi sína á sviði fiskeldis á undanförnum árum, sérstaklega í landeldi. Set býður upp á efni fyrir vatns- og fráveitu, dælur, þjónustu og ráðgjöf, sem og sérlausnir í smíði tanka og stórra tenginga.
Fyrirtækið hefur þróað sérhæfðar lausnir sem mæta þörfum fiskeldisfyrirtækja, hvort
sem um er að ræða í ferskvatns- eða lagareldi. Með áherslu á nýsköpun og gæði tryggir
Set að viðskiptavinir fái áreiðanlegar og hagkvæmar lausnir sem stuðla að betri arðsemi
og sjálfbærni í fiskeldi.
Þjónusta Set nær yfir allt ferlið, frá hönnun og ráðgjöf til uppsetningar og viðhalds. Með
því að bjóða upp á heildarlausnir getur Set hjálpað til við að hámarka framleiðslugetu og lágmarka rekstrarkostnað.
Set ehf. var stofnað árið 1978 og árið 1982 voru fyrstu plaströrin framleidd í verksmiðju fyrirtækisins á Selfossi.
Fyrirtækið hefur á þessum fjörutíu árum starfað í hörðu samkeppnisumhverfi, sem hefur krafist þess að viðhalda stöðugri árverkni og skjótum viðbrögðum í rekstri og þróun, með áherslu á hátækni, framleiðni og gæðavitund. Fyrirtækið hefur aflað sér mikillar þekkingar
og reynslu á sviði framleiðslutækni á þessum tíma.
Fræðslumál hafa verið efld til muna hjá Set á undanförnum árum, en fyrirtækið rekur nú eigið fræðslukerfi fyrir starfsfólk, Set-Plastiðnaðarskólann, og annast auk þess námskeiðahald á sviði lagnatækni fyrir viðskiptavini sína. Íslenski lagnamarkaðurinn hefur á undanförnum árum einnig lagt aukna áherslu á gæðamál og fræðslu, og er markmiðið að auka endingartíma og draga úr viðhaldsþörf lagnakerfa sem sífellt verða stærri og margbrotnari.
Til að slást í hópinn með Set og öðrum öflugum fyrirtækjum á IceFish, hafið samband við teymið okkar í gegnum netfangið sales@icefish.is




