
Sprotafyrirtækjasvæðið á IceFish er sérsniðið fyrir nýja sýnendur og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í sýningarhaldi. Þeir sem sýna í fyrsta skipti þurfa ekki að borga skráningargjald. Fyrir aðeins kr. 205.000 fær sýnandi fullbúið 1m x 1m sýningarrými með geymsluskáp, stól, lýsingu, teppi, Wi-Fi og daglegum þrifum.
Til að hámarka kynninguna fyrir ný og efnileg fyrirtæki fá sýnendur á Sprotafyrirtækjasvæðinu ókeypis merkingu/grafík á framhlið sýningarbássins og geta nýtt sér sameiginlega vörusýningarsvæðið, sem er tilvalið til að kynna sýnishorn af vöruúrvali, búnaði eða tækninýjungum.
Eins og aðrir sýnendur munu sprotafyrirtæki einnig góðs af því að geta sent upplýsingateymi IceFish fréttir og tilkynningar til birtingar í frétta- og samskiptamiðlum sýningarinnar.
Til að eiga kost á tilboðinu fyrir Sprotafyrirtækjasvæðið verða sýnendur að vera að stíga sín fyrstu spor á IceFish eða ekki sýnt þar síðan 2022.
Til hvetja fyrirtæki til þátttöku í fyrsta skipti er aðild að Sprotafyrirtækjasvæðinu bundin við eina IceFish-sýningu.
Til að fá frekari upplýsingar og skilmála og til að nýta þetta spennandi tilboð er hægt að hafa samband í gegnum netfangið sales@icefish.is.



