
Þannig hljóðar hreint og klárt mat Jóns Þórs Björnssonar, skipstjóra á Hákoni ÞH-250, af rúmlega eins árs reynslu hans af fjarstýrðu toghlerunum frá Thyborøn Trawldoor. Hákon var smíðaður í Skagen árið 2024 fyrir Gjögur hf., og skipstjóri á móti Jóni Þór er Arnþór Pétursson.
Gestir Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningarinnar & ráðstefnanna dagana 22.-24. september nk., munu geta kynnt sér þessa tegund toghlera og aðrar áhugaverðar framleiðsluvörur Thyborøn Trawldoor. Fyrirtækið hefur nú bæst í þann stóra hóp sýnenda sem sem snúa gallvaskir aftur á IceFish, sem staðfestir vel ánægju þeirra með árangurinn á fyrri sýningum.
Um er að ræða týpu 42 af toghlerum frá Thyborøn Trawldorr, 12 m² að stærð og 4,7 tonn að þyngd, og eru toghlerarnir á Hákoni þeir fyrstu sinnar tegundar sem settir voru á íslenskt skip. Eftir rúmlega árs notkun við allar hugsanlegar aðstæður á íslensku fiskimiðunum liggur fyrir veruleg reynsla af notkun hleranna, og hún er jákvæð í hvívetna sem fyrr segir.
Jón Þór lýsir toghlerunum sem þeim langbestu sem hann hafi notað við veiðar í gegnum tíðina. „Þeir eru stöðugir, bæði við köstun og hífingu, liprir í notkun og ótrúlega léttir í drætti miðað við þyngd,” segir hann. „Það er ánægjulegt að vinna með þessa hlera og ég held að þeir muni duga okkur vel og lengi.”
Jón Þór bendir á að fyrstu mánuðina hafi hlerarnir verið notaðir án stýribúnaðar, og hafi tækjakosturinn strax reynst traustur, fjölhæfur og þjáll, og auðveldaði alla vinnu til muna. „Við vorum strax ánægðir, þeir komu alltaf réttir og voru fljótir í skver,“ segir hann.
Jón Þór segir að stærsta framfaraskrefið hafi falist í stýrikerfinu. Allur búnaðurinn, sem og hugbúnaðurinn, er þróaður af Thyborøn Trawldoor. Hann gerir notandum kleift að stilla bæði stöðu og virkni hleranna úr brúnni meðan á toginu stendur. Jón Þór lýsir þessari tækni sem „fullkominni byltingu“, og að hún hafi aukið verulega heildarvirkni veiðarfæranna.
Forsvarsmenn Gjögurs hf. tóku ákvörðu um að fjárfesta í fjarstýrðum Thyborøn-trollhlerum fyrir Hákon eftir gaumgæfilega og nákvæma skoðun á fjölmörgum valkostum. „Það voru nokkrir möguleikar í boði, en ég er hæstánægður með valið,“ segir Jón Þór skipstjóri, og hefur sömuleiðis aðeins gott eitt að segja um tækniþjónustu danska fyrirtækisins: „Eitt símtal og aðstoðin er mætt.“
Thyborøn Trawldoor verður staðsett á sýningarbás E-52 á IceFish.
Til að fá nánari upplýsingar um sýningaraðstöðu á IceFish er hægt að senda tölvupóst í netfangið: ttattum@mercatormedia.com




