Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin býður fyrirtækið Vélar og Dælur ehf.
hjartanlega velkomið í stóran hóp öflugra sýnenda á IceFish 2026.
Fyrirtækið var stofnað í september 2023 af hjónunum Ingvari Hilmarssyni og
Vilborgu Ragnarsdóttur.
Það er leiðandi í sölu á iðnaðarbúnaði fyrir fiskeldi, sjávarútveg og annan iðnað
á Íslandi, og býður upp á vandaðar lausnir frá fremstu framleiðendum og varahluti
í flestallar dælur.
Ingvar er mjög reynslumikill í faginu og hefur starfað við viðgerðir á dælum og sölu
á dælum, rafmótorum og öðrum búnaði undanfarin fimmtán ár. Vilborg starfaði
áður með foreldrum sínum, Ragnari og Karen, í fyrirtæki þeirra, Vélar ehf.
Í lok ágúst 2023 ákváðu Ingvar og Vilborg að stofna sitt eigið fyrirtæki, Vélar og
Dælur ehf. Markmiðið er að byggja upp Vélar og Dælur ehf sem traust fjölskyldu-
fyrirtæki sem er komið til að vera.
Í dag starfa báðir synir þeirra hjóna, Daníel og Ragnar, hjá fyrirtækinu.
Stefna Vélar og Dæla ehf. er að taka öllum áskorunum opnum örmum og veita
þjónustu sem fyrirtækið getur verið stolt af.
Til að slást í hópinn með Vélum og Dælum og öðrum öflugum sýnendum á IceFish
2026, stærstu sýningu á Íslandi á sviði sjávarútvegs og fiskeldis, er einfaldast að
hafa samband við teymið okkar í netfanginu sales@icefish.is




