
Norska fyrirtækið Turing AS, einn af sýnendum á IceFish 2026, býður upp á stafrænan vettvang til að aðstoða verktaka og rekstraraðila í fiskeldi.
Stafræni vettvangurinn styttir tímann sem verja þarf í hugmyndavinnu úr mánuðum í
aðeins nokkrar vikur, sem gerir fiskeldistöðvum og þróunaraðilum í fiskeldi kleift að
hraða verulega ferlinu frá fyrstu hugmyndum til framkvæmdarhæfra, skipulagðra áætlana.
Þegar stafræni vettvangurinn frá Turing er kominn í notkun hjálpar hann við til að viðhalda stöðugleika, samkvæmni og hámarka jákvæða útkomu framkvæmdaáætlana. Vettvangur-
inn aðstoðar rekstraraðila fiskeldisstöðva við að stýra framleiðslunni af nákvæmni og tryggja með tímanum stöðug og skilvirk afköst.
Notendur geta þannig með einum samþættum stafrænum vettangi búið til ítarlegar framleiðsluáætlanir og hönnunarþætti og fengið myndræna sýn á skipulag eldisstöðvarinnar, um leið og þeir vinna samtímis og snurðulaust að nýjum verkefnum og sinna núverandi rekstri.
Hvort sem markmiðið er að nýta til fullnustu alla mögulega þætti núverandi rekstrar, eða koma nýrri hugmynd á koppinn, straumlínulagar vettvangur Turing hvert einasta skref á þeirri leið. Ásamt því að auka nákvæmni, draga úr áhættuþáttum og stytta tímann frá því að varan er framleidd þangað til að hún er komin í sölu á markaði.
Í atvinnugrein þar sem skilvirkni, nákvæmni og sjálfbærni skipta sköpum, útvegar Turing fiskeldisbændum þau verkfæri sem þeir þurfa til að ráðast í nýsköpun af öryggi.
Turing AS mun sýna á IceFish í bás H34, í hinni nýju Miðstöð fiskeldis.
Til að nýta þér hinn dýrmæta gestahóp IceFish og gerast sýnandi, er þægilegast að hafa samband við teymið okkar í gegnum netfangið sales@icefish.is.




