
Nú er frágengið að alhliða flutningsmiðlunin TVG-Zimsen mun á nýjan leik veita flutninga- og lyftiþjónustu fyrir Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýninguna, IceFish 2026, sem haldin verður í september nk. Sýnendur á IceFish munu fyrir vikið njóta góðs af þessari nauðsynlegu þjónustu í aðdraganda sýningarinnar og meðan á henni stendur.
TVG-Zimsen hefur um árabil verið mikilvægur og traustur samstarfsaðili IceFish. Fyrirtækið mun sem fyrr ekki aðeins útvega víðtæka og vandaða þjónusta og kynna reksturinn á sjálfri sýningunni, heldur nýtir sér einnig til fullnustu umfangsmikið markaðsstarf IceFish hérlendis og erlendis. Ávinningurinn er því gagnkvæmur eins og vera ber í góðu og árangursríku samstarfi.
TVG-Zimsen er alþjóðlegt flutningafyrirtæki sem býður upp á alla þá þjónustu sem tengist inn- og útflutningi, ásamt fjölbreyttu framboði flutningaþjónustu um víða veröld. TVG-Zimsen starfar með mörgum helstu flutningafyrirtækjum heimsins og hagnýtir sér margþætt þjónustu- og flutningakerfi samstarfsaðila sinna í þágu viðskiptavina.
Fyrirtækið á rætur að rekja allt til ársins 1932, þegar skipaafgreiðsla Jes Zimsen, sem þá var hluti af verslun hans, varð að sérstöku fyrirtæki. TVG-Zimsen varð síðan til með sameiningu Skipaafgreiðslu Jes Zimsen og Tollvörugeymslurnar hf. árið 1996. TVG-Zimsen hefur styrkt alþjóðlegan rekstur sinn með hverju ári síðan þá, og rekur nú umboðsskrifstofur í Árósum í Danmörku, Hamborg í Þýskalandi, Rotterdam og Amsterdam í Hollandi og í New York í Bandaríkjunum.
Auk hefðbundinnar flutningsmiðlunar hefur fyrirtækið lagt áhersla á að bjóða upp á sérhæfða þjónustu við sérverkefni, svo sem kvikmyndagerð á Íslandi, lyfjamarkaðinn og svokallaða „cross-trade“ þjónustu fyrir erlenda starfsemi íslenskra fyrirtækja.
Á tvítugsafmæli TVG-Zimsen árið 2016 var það orðið leiðandi fyrirtæki í flutningsmiðlun á Íslandi, með fjögur megináherslusvið: Sjó- og loftflutningar, innanlandsflutningar, sérverkefni og umboðsþjónusta.
Forsvarsmenn IceFish hlakka til að vinna með TVG-Zimsen á þessu ári, 2026, sem svo skemmtilega vill til að er líka 30 ára afmælisár þessa öfluga alþjóðlega flutningsfyrirtækis.
Image:
Left to Right Tracey Clarke, IceFish Event Manager; Elísa Dögg Björnsdóttir, Vice-President, TVG-Zimsen; Sally Wattam, Event Director, Mercator Media




